Salka Sigmarsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í lögfræði

„Það fæðist enginn með dómasafn Hæstaréttar í vöggunni.“
Salka Sigmarsdóttir er Vesturbæingur í húð og hár, með mikinn áhuga á tónlist, og útskrifast nú með ágætiseinkunn úr lögfræði við Háskóla Íslands.
Áhuginn á lögfræði kviknaði í lögfræðiáfanga í Verzló og í kjölfarið ákvað hún að velja lögfræði við HÍ. Hún segir námið hafa verið góðan og praktískan kost sem opni margar leiðir til framtíðar.
Í náminu standa námskeiðin Almenn lögfræði og Eignaréttur sérstaklega upp úr, en félagslífið skipaði líka stóran sess ásamt göngutúrum í nammisjálfsalann í Odda í prófatíð.
Það sem Sölku fannst mest krefjandi var að halda dampi yfir langt tímabil þar sem álagið var mikið, ekki síst þegar vorprófin lentu á bestu sólardögum ársins.
„Ég held að blanda af þrjósku, áhuga á efninu og tilhlökkun til sumarfrís hafi komið mér í gegnum það.“
Það kom henni skemmtilega á óvart að námið var minna „þurrt“ en hún hafði búist við. Besta námsráðið hennar til nýrra laganema er að leggja sig fram við að skilja efnið strax frá byrjun.
„Að leggja sig fram í upphafi námsins stendur með manni það sem eftir lifir námsins og sparar manni tíma þegar á heildina er litið.“
Salka var virk í félagslífinu samhliða náminu. Síðastliðið ár var hún ritstýra Úlfljóts og sat í stjórn Orators, auk þess sem hún hafði áður verið í ritnefnd Úlfljóts og Gríms Geitskós. Hún hefur einnig aðstoðað við rannsóknir og unnið á lögmannsstofu samhliða námi.
Eftir útskrift tekur við meistaranám við lagadeild Háskóla Íslands.
„Ég er að sjálfsögðu stolt af námsárangrinum mínum en einnig af þeim tækifærum sem hann hefur veitt mér.“
