Skip to main content
22. júní 2026

Sæunn Emelía Tómasdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr Alþjóðasamskiptum

Sæunn Emelía Tómasdóttir útskrifast með ágætiseinkunn úr Alþjóðasamskiptum - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Ég taldi mig vera búna að finna mig alveg í heimspekinni, en ég er mjög glöð að hafa prófað eitthvað nýtt.“

Sæunn Emelía Tómasdóttir segist aldrei alveg vita hvað hún á að segja þegar fólk spyr hvaðan hún sé enda gefi ekkert eitt svar alveg rétta mynd.

Hún er fædd í Þýskalandi, bjó lengi á Akureyri og hefur undanfarin ár búið í vesturbæ Reykjavíkur. Þrátt fyrir það segir hún sér líða best úti á landi. Hún hefur áhuga á heilmörgu, „ef ekki flestu“, eins og hún orðar það sjálf.

Eftir BA-nám í heimspeki ákvað Sæunn að fara beint í meistaranám í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands.

„Ég veit það ekki alveg. Það talaði bara eitthvað til mín. Ég vissi í raun bara takmarkað út í hvað ég var að fara og var alls ekki viss hvernig mér myndi ganga í þessu námi.“

Það sem kom henni skemmtilega á óvart var hversu heimspekilegt námið og námsefnið gat verið. Fyrir hana varð það skemmtileg tenging við fyrra nám og áhugasvið.

Það sem stóð þó mest upp úr var meistararitgerðin.

„Mér fannst í raun bara skemmtilegast að skrifa meistararitgerðina. Hún stendur klárlega upp úr. Það var mjög gaman að fá loksins að gera stærra verkefni þar sem maður fær að nýta allt sem maður hefur lært.“

Sæunn segir það hafa verið krefjandi að taka þátt í umræðum í náminu.

„Ég var eiginlega alltaf of feimin við að taka þátt í umræðum, þótt ég sé yfirleitt ekki feimin. Ég er frekar mjög félagslynd utan skólans.“

Besta námsráðið hennar til nýrra nemenda er að finna eigið áhugasvið.

„Ég hef alltaf bara verið í námi þar sem mikill áhugi hefur verið mitt besta og beittasta tól.“

Uppáhaldsnámsaðferðin hennar er að útskýra efnið fyrir öðrum til að skilja það betur þótt hún viðurkenni að hún hafi ekki beitt þeirri aðferð mjög oft og að hún sé kannski ekki alltaf sú hentugasta.

Samhliða náminu var Sæunn nánast alltaf í vinnu. Hún fór einnig í starfsnám hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og tók þátt í björgunarsveitarstarfi síðasta árið.

Eftir útskrift er hún komin í Skaftafell í Öræfum, þar sem hún starfar sem landvörður.

Það sem hún er stoltust af eftir námið er meistararitgerðin sín.

„Ég er stolt af meistararitgerðinni og að hafa valið efni sem var meiri áskorun og kannski aðeins óhefðbundnara.“

Utan námsins elskar Sæunn að stunda íþróttir og útivist, hlusta á tónlist, elda mat og lesa bækur.