Skip to main content
8. júní 2026

Ráðstefna um taugafjölbreytileika og listsköpun tengd Listahátíð

Ráðstefna um taugafjölbreytileika og listsköpun tengd Listahátíð - á vefsíðu Háskóla Íslands

Inter Lace Work ráðstefna um taugafjölbreytileika og listsköpun (The Inter Lace Work Conference on Neurodiversity and Creativity) fer fram í Háskóla Íslands, í tengslum við Listahátíð í Reykjavík og á netinu dagana 9.-12. júní. 

Ráðstefnan er hluti af rannsóknarverkefninu Anfinn (Autism and Neurodiversity ReFraming Innovation) sem Kathy D'arcy, nýdoktor við Bókmennta- og listfræðistofnun HÍ, stendur að. Það snýst m.a. um að finna nýjar leiðir til samstarfs fyrir einstaklinga í listum og skapandi greinum með taugafjölbreytileika að leiðarljósi. Ráðstefnan er ekki aðeins hugsuð fyrir þau sem starfa á vettvangi fötlunarfræða og lista heldur öll þau sem vilja rjúfa múra sem hindra þátttöku skynsegin rannsakenda og listafólks og fólks almennt í samfélaginu.

Listamenn og rannsakendur víða að úr heiminum taka þátt í ráðstefnunni og munu m.a. kynna verk sín á viðburði sem haldinn verður í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Hann ber heitið Ævintýri í skynsegin rými og fer fram í Iðnó fimmtudaginn 11. júní kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis. 

Kathy D'arcy er skynsegin ljóðskáld og rannsakandi frá Írlandi. „Skapandi starf fólks með einhverfu og skynsegin fólks hefur oft verið útilokað frá listrýmum og -samfélögum. Það er hægt að breyta því með því að horfa með nýstárlegum og tilraunakenndum hætti á það hvernig rými til sköpunar eru hönnuð. Það auðgar listir að gera þær meira inngildandi fyrir skynsegin fólk,“ segir Kathy.

Nánar um ráðstefnuna

""