Ný bók um tilfinningar í fornnorrænum bókmenntum

Út er komið fræðiritið New Studies on Emotion in Old Norse Literature, í ritstjórn Brynju Þorgeirsdóttur, lektors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Gareth Lloyd Evans, Oxford háskóla og Daniel Sävborg, háskólanum í Tartu.
Í bókinni, sem gefin er út í Acta Scandinavica ritröðinni hjá Brepols, eru þrettán greinar eftir jafnmarga höfunda þar sem kannað er hvernig tilfinningar birtast í fjölbreyttum flokkum fornnorrænna bókmennta: í eddu- og dróttkvæðum, rímum, riddarasögum, lækningatextum og rúnaristum auk konungasagna, Íslendingasagna, samtíðarsagna og fornaldarsagna.
Viðfangsefni greinasafnsins spanna vítt svið, allt frá ást, sorg og niðurlægingu til hryllings, frægra elskenda, fornra hugmynda um hugann, forvitni og þrá, svo fátt eitt sé nefnt. Höfundar beita ólíkum aðferðafræðilegum nálgunum og fræðilegum sjónarhornum, sem endurspeglar þann kraftmikla vöxt sem orðið hefur í rannsóknum á tilfinningum í miðaldabókmenntum á undanförnum árum.
Ritið nýtist bæði fræðimönnum og nemendum í miðaldabókmenntum, sagnfræði, málvísindum og tilfinningasögu, auk þess að vera líklegt til að höfða til allra sem hafa áhuga á því hvernig textar fortíðar endurspegla og tjá mannlegar tilfinningar.
