Ný bók um heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943

Út er komin bókin Gáttir. Heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943 eftir Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Útgefandi er Sæmundur.
Í bókinni er sjónum beint að margbrotinni þýðingaútgáfu hér á landi á tímabili umróts í menningarlífinu árin 1913 til 1943. Í hinu nýja fullvalda ríki var lögð áhersla á að byggja upp kröftuga íslenska nútímamenningu. Mikilvægur liður í því verkefni var að kynna nýjustu og mikilvægustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir lesendum og hugmyndin um heimsbókmenntir tók á sig mynd hérlendis. Í Gáttum skoðar Benedikt meðal annars strauma indverskra, pólskra, eistneskra, ungverskra, búlgarskra, jiddískra, kínverskra og japanskra bókmennta sem bárust íslenskum lesendum með einhverjum fyrstu þýðingunum á verkum þessara þjóðarbókmennta.
Benedikt Hjartarson lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Groningen árið 2012 og hefur verið prófessor við Íslensku- og menningardeild HÍ frá 2015. Eftir hann liggja nokkur rit um bókmennta- og menningarsögu nútímans.
