Skip to main content
15. júní 2026

Laganemar náðu góðum árangri í Norrænu málflutningskeppninni

Náðu góðum árangri í Norrænu málflutningskeppninni - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nemendur við Lagadeild Háskóla Íslands náðu góðum árangri í málflutningskeppni norrænna laganema sem fram fór í Reykjavík dagana 5.-7. júní.

Í málflutningskeppninni er keppt í málflutningi á dönsku, norsku eða sænsku þar sem reynir á ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Lið lagadeilda háskóla frá öllum norrænu ríkjunum taka þátt í keppninni og hlutverk keppenda er að flytja sókn og vörn í máli þar sem um er að ræða möguleg brot á ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu með sambærilegum hætti og þegar um er að ræða mál sem eru flutt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. 

Keppnin fer fram í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er skriflegur og hófst hann með afhendingu málsatvikalýsingar eftir miðjan febrúar. Keppendur fengu sex vikur til að skrifa greinargerðir í sókn og vörn í málinu. Keppnisstjórnin í Svíþjóð mat greinargerðinar til einkunna sem hún birti svo um miðjan maí. Síðari hluti keppninnar fólst í munnlegum málflutningi sem fram fór á Íslandi nú í byrjun júní. 

Af hálfu Íslands tók þátt í keppninni lið frá Lagadeild Háskóla Íslands en það skipuðu Draupnir Dan Baldvinsson, Guðrún Sigríður Arnalds, Helga Margrét Ólafsdóttir, Jens Ingi Andrésson og Stefán Þórarinn Hermannsson en þau sóttu öll námskeið sem kennt er við Lagadeild fyrir keppnina. Aðalleiðbeinandi liðsins var Víðir Smári Petersen, prófessor við Lagadeild, en aðrir þjálfarar voru Þorsteinn Davíð Stefánsson, Margrét Sjöfn Magnúsdóttir og Guðjón Þór Jósefsson. 

Árangur liðsins var mjög góður en það komst í undanúrslit. Einnig var Helga Margrét valin besti málflytjandinn í sínum riðli. 

Dómarar Norðurlandanna við Mannréttindadómstól Evrópu dæmdu í keppninni en þeirra á meðal var Oddný Mjöll Arnardóttir. Jafnframt dæmdu í keppninni dómarar frá æðstu dómstólum landanna og af hálfu Hæstaréttar tóku þátt Benedikt Bogason, forseti réttarins, og Björg Thorarensen hæstaréttardómari. Þau hafa öll verið prófessorar við Háskóla Íslands.
 

Þátttakendur í norrænu málflutningskeppninni ásamt dómurum, leiðbeinendum og þjálfurum og öðrum fulltrúum Islands í keppninni.