Skip to main content
3. janúar 2023

Inga Þórsdóttir hlýtur virt alþjóðleg verðlaun á sviði næringarfræði

Inga Þórsdóttir hlýtur virt alþjóðleg verðlaun á sviði næringarfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði og fyrrverandi forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, hlaut í desember heiðursverðlaun Alþjóðasamtaka næringarfræði og vísinda (e. International Union of Nutritional Sciences). Verðlaunin, IUNS Fellow, sem afhent voru á vísindaráðstefnu samtakanna í Japan, eru veitt þeim sem hafa skarað framúr á sviði næringarfræði. Einunigs einn Norðurlandabúi hefur hlotið þessi verðlaun áður. 
 
Alþjóðasamtök næringarfræði og vísinda voru stofnuð 1946. Markmið samtakanna er að stuðla að framförum í næringarfræði, rannsóknum og þróun alþjóðlegs samstarfs. Samtökin hvetja til samstarfs meðal næringarfræðinga frá öllum heimshornum og miðla upplýsingum í næringarfræði. Vísindaráðstefnur eru haldnar á fjögurra ára fresti víðsvegar um heiminn og sækja þær um fimm þúsund vísindamenn hverju sinni.
 
Inga Þórsdóttir hefur unnið ötullega að framgangi næringarfræðinnar, m.a. með stofnun Rannsóknarstofu í næringarfræði í samstarfi Háskóla Íslands og Landspítala og stofnun Matvæla- og næringarfræðideildar sem nú tilheyrir Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Inga var forseti Heilbrigðisvísindasviðs 2012-2022.

Brautryðjandi á sviði annsókna í næringarfræði á Íslandi

Rannsóknir Ingu eru á sviði klínískrar næringarfræði og lýðheilsunæringar. Hún hefur lagt mikla áherslu á næringu viðkvæmra hópa í samfélaginu. Inga hefur notað margar mismunandi aðferðir við rannsóknir sínar, eins og algengt er í næringarfræði, allt frá tilraunum til slembiraðaðra samanburðarrannsókna auk faraldsfræðilegra aðferða. Hún leggur áherslu á gott samstarf milli landa, stofnana, fræðigreina og ekki síst samstarf eldri og yngri vísindamanna sem hún hefur mikinn áhuga á. Rannsóknir Ingu og samstarfsfólks á næringu ungbarna hafa stuðlað að breytingum á opinberum ráðleggingum. Inga hefur einnig unnið með hópi evrópskra vísindamanna og Íslendinga að rannsóknum á næringu og matarhegðun skólabarna. Þá stýrði hún evrópskri rannsókn á heilsufarsáhrifum fisk- og lýsisneyslu meðal ungra fullorðinna auk rannsókna á næringarástandi aldraðra og skjólstæðinga á sjúkrahúsum.

Inga tekur virkan þátt í norrænu fræðasamstarfi, bæði í gegnum umfangsmiklar rannsóknir, nú síðast á heilsusamlegu norrænu mataræði, og í gegnum víðtækt samstarf um fæðu- og næringartengdar ráðleggingar, Norrænar ráðleggingar um næringarefni, þar sem Inga situr í stýrihópi.

Rannsóknir Ingu hafa hlotið styrki frá norrænum, evrópskum og bandarískum samkeppnissjóðum. Hún hefur leiðbeint mörgum meistara- og doktorsnemum, allt til ársins 2014, og leggur sig ávallt fram um að miðla vísindum til næstu kynslóða.

Inga hlaut verðlaun Ásu Guðmundsdóttur Wright-árið 2010 fyrir þróun og árangur í næringarfræðirannsóknum á Íslandi og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf árið 2014. Hún hlaut hvatningarstyrk Landspítala 2011 og var heiðursvísindamaður spítalans 2012. Árið 2004 hlaut hún Fjöreggið, verðlaun Matvæla- og næringarfræðifélags Íslands, fyrir frumkvöðlastörf að rannsóknum í næringarfræði.

Inga Þórsdóttir er einn helsti brautryðjandi rannsókna í næringarfræði á Íslandi og eru verðlaunin mikil viðurkenning fyrir rannsóknir í næringarfræði hér á landi. 
 

Inga Þórsdóttir