Skip to main content
15. júní 2026

Indíana útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði

Indíana útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Það sem kom mér helst á óvart voru allir þeir starfsmöguleikar sem námið opnar á.“

Indíana kemur upprunalega frá Fáskrúðsfirði en hefur búið á höfuðborgarsvæðinu í rúman áratug. Hún hefur áhuga á tungumálum, líkamsrækt, ferðalögum og bakstri og auðvitað stjórnmálum og alþjóðasamfélaginu.

Áhuginn á samfélagsmálum varð til þess að hún valdi nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga og sterkar skoðanir á málefnum samfélagsins, bæði hérlendis og erlendis.“

Það sem stendur mest upp úr í náminu er skiptinámið hennar í Belgíu. Indíana fór í skiptinám í eina önn við KU Leuven á vegum Erasmus+ og Háskóla Íslands. Þar kynntist hún fólki víðs vegar að úr heiminum og lærði mikið bæði í náminu og af þeirri reynslu að búa ein í nýju landi.

„Ég mæli rosalega mikið með skiptinámi fyrir alla. Reynslan er svo gefandi og ég fékk styrk frá Erasmus sem fjármagnaði dvölina að mestu leyti.“

Auk skiptinámsins segir Indíana kennarana og vinina sem hún kynntist í náminu standa sérstaklega upp úr.

„Kennararnir við stjórnmálafræðideild eru allir æðislegir og þau hjá Politica eru mjög dugleg að halda alls konar skemmtilega viðburði þar sem fólk getur komið saman.“

Það sem henni fannst mest krefjandi var að púsla saman námi, vinnu, félagslífi, hreyfingu og tíma með fjölskyldunni. Með tímanum lærði hún þó að skipuleggja sig betur og náði þannig að sinna þessu öllu.

Það sem kom henni helst á óvart í náminu var hversu fjölbreyttir starfsmöguleikar standa stjórnmálafræðingum til boða.

„Þau sem eru með gráðu í stjórnmálafræði starfa ekki einungis á vettvangi Alþingis eða stjórnsýslunnar eins og margir halda, heldur eru mörg fjölbreytt atvinnutækifæri í boði.“

Besta námsráð Indíönu er að mæta vel í tíma og glósa jafnt og þétt.

„Ég tel mig vera með frekar gott sjónminni, þannig að mér finnst langbest að lesa allt lesefni mjög ítarlega og glósa síðan upp úr því. Ég myndi líka mæla með því að mæta í sem flesta tíma og glósa þar. Þannig veit maður hvað kennarinn leggur mesta áherslu á.“

Samhliða náminu vann Indíana alltaf í hlutastarfi og reyndi að mæta reglulega í ræktina. Hún tók ekki að sér formleg nefndarstörf í félagslífinu en var dugleg að mæta á viðburði hjá Politica og hitta vini sína.

Eftir útskrift ætlar Indíana að vinna í hálft ár til að safna fyrir bakpokaferðalagi um Asíu, Ástralíu og Suður-Ameríku sem er planað í byrjun næsta árs. Að ferðalaginu loknu stefnir hún á meistaranám erlendis, annaðhvort í alþjóðasamskiptum eða Evrópufræðum.

Það sem hún er stoltust af eftir námið er BA-ritgerðin sín.

„Hún var umfangsmesta verkefnið sem ég lauk meðan á náminu stóð.“

Til hamingju Indíana!