Skip to main content
15. júní 2026

Hilma Ösp Áskelsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði

Hilma Ösp Áskelsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr afbrotafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Vinir mínir myndu líklega lýsa mér sem mikilli gellu, metnaðarfullri og hugmyndaríkri manneskju,“ segir Hilma Ösp Áskelsdóttir, 26 ára Akureyringur, sem útskrifaðist með meistaragráðu í afbrotafræði frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.

Hilma lauk áður BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og valdi afbrotafræði þar sem hana langaði að öðlast dýpri skilning á þeim samfélagslegu þáttum sem hafa áhrif á hegðun einstaklinga, sérstaklega barna og ungmenna. Eftir BA-námið þróaðist áhugi hennar á forvörnum, velferð barna og stuðningi við einstaklinga í viðkvæmri stöðu.

Það sem stóð sérstaklega upp úr í náminu var starfsnám hjá Upplýsinga- og áætlanadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar fékk hún mikilvæga innsýn í hvernig námið getur nýst í raunverulegu samhengi. Hún nefnir einnig góð samskipti við kennara og mikinn stuðning þeirra í gegnum námið.

Hilma segir að það hafi komið sér á óvart hversu fjölbreytt afbrotafræði er sem fræðigrein. Það sem reyndist henni mest krefjandi var að takast á við áfanga sem virtust í fyrstu vera utan þægindarammans. Hún segir mikilvægt að þora að skora á sjálfa sig og velja áfanga sem vekja áhuga, jafnvel þótt maður sé ekki viss um að ráða strax við þá.

Samhliða náminu starfaði Hilma meðal annars sem aðstoðarkennari í þremur námskeiðum og kom að rannsóknarverkefni um galla í nýbyggðum fjölbýlishúsum á Íslandi.

Hún er sérstaklega stolt af meistararitgerðinni sinni, Hate Crime Victimization and Offending Among Adolescents in Iceland: The Role of Individual, Social, and Environmental Factors.

Utan námsins hefur Hilma gaman af því að ferðast um Ísland, prjóna, lesa, fara í pilates og „gellast“ með vinkonum sínum. Eftir útskrift tók hún stefnuna á Amsterdam með vinkonum sínum, þar sem þær fóru meðal annars á tónleika með Harry Styles og Robyn, og síðar í sumar bíður fjölskylduferð til Gardavatns á Ítalíu.

Fram undan er starf á stuðningsheimili á vegum Barna- og fjölskyldustofu, en Hilmu dreymir um að starfa áfram með börnum og ungmennum eða í þeirra þágu.

Til hamingju með glæsilegan árangur, Hilma Ösp!