Hildur Telma Hauksdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í stjórnmálafræði

„Ég myndi hiklaust mæla með stjórnmálafræðináminu í Háskóla Íslands.“
Hildur Telma Hauksdóttir útskrifast nú sem stjórnmálafræðingur eftir þrjú frábær ár við Háskóla Íslands. Hluta námsins tók hún erlendis, en hún fór í skiptinám í eina önn við KU Leuven-háskóla í Belgíu.
Það sem stóð helst upp úr í náminu, fyrir utan frábæra samnemendur og kennara við deildina, var námsferð stjórnmálafræðideildar til Bandaríkjanna vorið 2025.
„Við fórum í 10 daga námsferð til New York og Washington D.C. sem var í senn lærdómsrík og skemmtileg.“
Meðfylgjandi mynd er einmitt úr þeirri ferð, þegar hópurinn heimsótti höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York.
Hildur Telma var einnig virk í félagslífinu samhliða náminu. Síðastliðið skólaár var hún varaforseti og hagsmunafulltrúi Politica, félags stjórnmálafræðinema. Þar gætti hún hagsmuna stjórnmálafræði- og blaðamennskunema á deildar- og námsnefndarfundum og tók þátt í að halda fjölmarga viðburði ásamt stjórn félagsins.
„Það var frábært að fá að vinna með svona öflugri stjórn og taka þátt í að skapa lifandi félagslíf fyrir nemendur.“
Í sumar starfar Hildur Telma hjá Þjóðskrá Íslands, þar sem hún er hluti af lögheimilisteymi stofnunarinnar. Í haust tekur síðan við nýr kafli þegar hún hefur nám í alþjóðasamskiptum við Háskólann í Álaborg til tveggja ára.
Hún hefur einnig hlotið einstakt tækifæri sem nemandi við Háskóla Íslands: að fara til Genfar í september, þar sem Ísland á sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, og fylgja fastanefnd Íslands í tvær vikur.
„Ég skrifaði lokaritgerðina mína um setu Íslands í mannréttindaráðinu, svo það verður mjög fróðlegt að fá að fylgjast með störfunum á sjálfum staðnum.“
Hildur Telma segir stjórnmálafræðina vera fjölbreytt nám sem veiti góðan grunn fyrir ólíkar leiðir að námi loknu.
„Kennararnir búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu sem þeir miðla vel til nemenda og svo er félagslífið mjög öflugt, sem er ekki síður mikilvægt.“
