Guðbjörg Alma Sigurðardóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í félagsfræði

„Ég hef mikinn áhuga á fólki, samskiptum og því sem tengist mannlegum samfélögum,“ segir Guðbjörg Alma Sigurðardóttir, sem útskrifaðist með ágætiseinkunn úr félagsfræði frá Háskóla Íslands 13. júní.
Áhugi hennar á félagsfræði kviknaði í menntaskóla, þar sem einn skylduáfangi í félagsvísindum leiddi til þess að hún skráði sig í alla félagsfræðitengda valáfanga sem stóðu til boða. „Eftir það var eiginlega ekki aftur snúið,“ segir hún.
Það sem stóð helst upp úr í náminu var gott andrúmsloft innan félagsfræðinnar. Hún segir kennarana hafa einlægan áhuga á kennslu og velferð nemenda og upplifði líka mikinn stuðning meðal samnemenda.
BA-verkefnið er það sem hún er stoltust af eftir námið, en þar fékk hún meðal annars tækifæri til að tengja fræðin við áhuga sinn á hinsegin málefnum.
Aðspurð um góð ráð til nýnema segir hún mikilvægt að prófa sig áfram og finna þá námsaðferð sem hentar best. Sjálf nýtti hún A3-blöð til að skrifa niður aðalatriði hverrar viku og fannst gagnlegt að útskýra námsefnið fyrir öðrum.
Næstu skref eru að vinna, ferðast og stækka sjóndeildarhringinn á meðan hún áttar sig betur á því hvað hana langar að gera næst.
Til hamingju með glæsilegan árangur!
