Skip to main content
26. mars 2026

Gavin Lucas hlaut Gad Rausing verðlaunin

Gavin Lucas hlaut Gad Rausing verðlaunin - á vefsíðu Háskóla Íslands

Gavin Lucas, prófessor í fornleifafræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, fékk Gad Rausing verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á ársfundi sænsku Kungliga vitterhetsakademien 20. mars síðastliðinn fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á sviði hugvísinda. Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, afhenti verðlaunin.

Gavin hlaut verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á hinum kennilega grundvelli fornleifafræðinnar en hann hefur staðið í fararbroddi vísindalegra undirstöðukenninga í fornleifafræði í tvo áratugi og þróað nýjar hugmyndir um hvernig við skiljum tímann og um samband frásagnar og fornleifa. Kenningar sínar byggir Gavin á áralöngum fornleifarannsóknum í Englandi, Suður-Afríku, Tyrklandi en ekki síst á Íslandi.

Í frétt á vefsíðu akademíunnar segir Gavin að það sé honum mikill heiður að hljóta verðlaunin. Oft sé erfitt að meta viðtökur verka sinna en að verðlaun sem þessi segi sína sögu. „Verðlaunin eru líka áminning um að við erum hluti af stærra fræðasamfélagi þar sem hugvísindi njóta viðurkenningar fyrir sitt ómissandi framlag,“ segir Gavin. „Ég vil einnig nefna það umhverfi sem ég hef fengið að blómstra í, samstarfsmenn mína og stofnanirnar sem ég hef starfað með. Sá stuðningur sem ég hef notið og samstarfið sem ég hef átt hefur gert mér það kleift að sinna þessu rannsóknastarfi.“

Gad Rausing verðlaunin eru veitt norrænum fræðimanni á sviði hugvísinda ár hvert. Það voru börn Gad Rausing sem stofnuðu til verðlaunanna árið 2002 til minningar um föður sinn. Gad Rausing var doktor í fornleifafræði og velgjörðarmaður fræðafólks á sviði fornleifafræði og menningarrannsókna.

Gavin Lucas lauk doktorsnámi við Cambridge-háskóla en hefur starfað við Háskóla Íslands frá 2006 og hafa rannsóknir hans beinst að fornleifafræði nýaldar og fornleifafræðikenninga. Hann hefur stýrt fjölda rannsóknaverkefna hér á landi, m.a. í Skálholti, Viðey og Seltjarnarnesi en auk þess unnið við fornleifarannsóknir víða um heim, t.d. á Ítalíu og Suður-Afríku. Gavin hefur birt fjölda greina um fornleifafræðikenningar og er höfundur nokkurra bóka, þ.á m. Understanding the Archaeological Record (Cambridge University Press, 2012), Writing the Past (Routledge, 2019), Making Time (Routledge, 2021) og Archaeological Situations (Routledge, 2022). Hann hlaut Rivers Medal viðurkenninguna frá bresku mannfræðistofnuninni The Royal Anthropological Institute árið 2022.

Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, afhendir Gavin Lucas verðlaunin. Myndir: Erik Cronberg