Gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903

Nýr vefgagnagrunnur um alþingiskosningar á árunum 1874–1903 hefur verið opnaður á miðlunarvef Þjóðskjalasafns Íslands á slóðinni heimildir.is/kjorgogn. Gagnagrunnurinn er samstarfsverkefni Þjóðskjalasafns Íslands og Hrafnkels Lárussonar, nýdoktors við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Hann byggir á stafrænni uppskrift kjörskráa og atkvæðaskráa frá 1874–1903 sem til þessa hafa einungis verið aðgengilegar á pappír.
Gagnagrunnurinn er tvískiptur. Annars vegar er um að ræða upplýsingasíðu sem starfsfólk Þjóðskjalasafns hefur sett upp og inniheldur skýringar og úrvinnslu kjörgagna sem Hrafnkell Lárusson hefur unnið. Hins vegar er vefbirting gagnagrunnsins sem fyrirtækið Expectus ehf. hannaði í samvinnu við aðstandendur verkefnisins. Í vefgagnagrunninum má leita að einstaklingum, bæði kjósendum og frambjóðendum, og kalla fram upplýsingar eftir ýmsum valkostum auk þess sem þar birtist ýmiss konar tölfræði um kosningar á tímabilinu.
Síðasti fjórðungur 19. aldar og upphafsár 20. aldar voru tími róttækra breytinga á flestum sviðum íslensks samfélags. Meðal þessara breytingar voru áberandi vöxtur í félagastarfi, lýðræðisþróun og öflugri réttindabarátta almennings, sem skilaði sér meðal annars í útvíkkun kosningaréttar til þjóðfélagshópa sem höfðu verið útilokaðir frá fullum þegnrétti.
Það er von aðstandenda gagnagrunnsins að hann geti nýst bæði við rannsóknir og kennslu og auk þess verið forvitnilegur áhugafólki um stjórnmálasögu og kosningar. Smellið hér til að hlusta á hlaðvarp þar sem Unnar Ingvarsson, fagstjóri stafrænnar endurgerðar í Þjóðskjalasafni, og Hrafnkell Lárusson ræða um tilurð gagnagrunnsins, virkni hans og notkunarmöguleika.
