Fræjum sáð fyrir framtíðarnám á árlegri Aurora-ráðstefnu

Fjölbreyttur hópur starfsfólks og stúdenta úr háskólum innan Aurora-samstarfsnetsins, þar á meðal frá Háskóla Íslands, kom saman til árlegs fundar netsins dagana 19.-22. maí. Fundurinn fór að þessu sinni fram við Université Paris-Est Créteil (UPEC) í París og þar var unnið að frekara samstarfi aðildarskólanna á sviði náms, rannsókna og nýsköpunar auk sjálfbærni og samfélagsáhrifa.
Á fundinum urðu leiðtogaskipti innan Aurora-samstarfsnetsins en Veronika Sexl, prófessor og rektor Háskólans í Innsbruck í Austurríki, tekur nú við sem forseti netsins af Martin Procházkam, rektor Palacký-háskólans í Tékklandi.
Á ráðstefnunni var m.a. boðið upp á erindi með nóbelsverðlaunahafanum Elizabeth Blackburn sem fjallaði um brautryðjenda rannsóknir sínar á sviði sameindalíffræði sem tengjast m.a. öldrun og krabbameinum en þess má geta að Blackburn flutti erindi hér á landi árið 2011 í tengslum við aldarafmæli Háskóla Íslands.
Á ráðstefnunni var enn fremur í fyrsta sinn efnt til Sjálfbærnifundar Aurora (e. Aurora Sustainability Summit) en þar deildu aðildarskólar frásögnum af þeim árangri sem þeir hafa náð í sjálfbærnimálum á háskólasvæðunum og í fræðastarfi sem og þeim áskorunum sem þeir standa frammi fyrir. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands, var meðal þátttakenda í pallborðsumræðum á fundi þar sem rætt var um gildi samstarfsneta fyrir háskóla til að auka sjálfbærni.

Auk þessa var boðið upp á fjölbreyttar vinnustofur og erindi sem snertu allt frá framtíð European Universities Initiative, áætlun Evrópusambandsins um aukið samstarf evrópskra háskóla, til aukins vísindasamstarfs innan Aurora og réttinda stúdenta og aðkomu þeirra að samstarfinu. Þá áttu ólíkir stefnu- og vinnuhópar innan Aurora-netsins fundi á ráðstefnunni með það fyrir augum að þróa áfram aukið samstarf aðildarskólanna um stuðning við rannsóknir, sameiginlegt námsframboð, nemenda- og kennaraskipti og borgaravísindi.
Á ráðstefnunni var enn fremur í fyrsta sinn efnt til Sjálfbærnifundar Aurora (e. Aurora Sustainability Summit) en þar deildu aðildarskólar frásögnum af þeim árangri sem þeir hafa náð í sjálfbærnimálum á háskólasvæðunum og í fræðastarfi sem og þeim áskorunum sem þeir standa frammi fyrir. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands, var meðal þátttakenda í pallborðsumræðum á fundi þar sem rætt var um gildi samstarfsneta fyrir háskóla til að auka sjálfbærni. Á sjálfbærnifundinum var enn fremur boðið upp á gagnvirkar vinnustofur um framtíðarlæsi, aðgerðir í loftslagsmálum og líffræðilegan fjölbreytileika.
Á ráðstefnu Aurora gafst jafnframt gott tækifæri til að fara yfir þann árangur sem starfið hefur þegar skilað og hvernig samstarf aðildarskólanna hefur leitt til breytinga innan þeirra og utan og stuðlað að grænna, sjálfbærara og meira inngildandi háskólaumhverfi í Evrópu.
Aurora er samstarfsnet öflugra evrópskra rannsóknarháskóla sem vinna saman að því að efla kennslu, rannsóknir og nýsköpun með það fyrir augum að mennta nemendur sína til þess að takast á við brýnar samfélagslegar áskoranir.
Fjölbreyttur hópur starfsfólks og stúdenta úr háskólum innan Aurora-samstarfsnetsins, þar á meðal frá Háskóla Íslands, kom saman til árlegs fundar netsins dagana 19.-22. maí. mynd/Ciprian Otteanu - Waverline