Erasmus-verkefni um ensku sem miðlunarmál á háskólastigi

Verkefnið „Enska sem miðlunarmál á háskólastigi í Evrópu“ eða „English-Medium Education for European Universities“ (EME4EU) er samstarfsverkefni sjö aðila frá sjö löndum og styrkt af Erasmus+ áætluninni. Verkefnið sem er til þriggja ára fór af stað í lok síðasta árs og miðar að því að styðja notkun ensku sem miðlunarmáls við kennslu nemenda sem ekki hafa ensku sem móðurmál (English-Medium Education, EME) í háskólum í Evrópu. Það er gert með því að greina árangursríkar kennsluaðferðir og auka vitund um gildi kennslu á ensku í alþjóðlegu háskólastarfi um leið og staða heimamálsins er tryggð. Verkefnið varðar bæði háskólakennara og -nemendur sem og stjórnendur í háskólum. Meðal afurða úr verkefninu verður samanburður á stefnum í ýmsum löndum er varðar notkun ensku sem miðlunarmáls, safn dæma um góða kennsluhætti, leiðbeiningar fyrir stjórnendur um notkun ensku sem miðlunarmáls og fræðsluefni fyrir kennara.
Haraldur Bernharðsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild, og Rannveig Sverrisdóttir, lektor við sömu deild, eru fulltrúar Háskóla Íslands í verkefninu.
Sjá nánar á heimasíðu verkefnisins.
