Aukið tækifæri innflytjenda til að sannreyna íslenskufærni

Miðstöð um íslenskupróf hefur verið komið á fót við Hugvísindasvið Háskóla Íslands sem hefur það hlutverk að veita innflytjendum aukið tækifæri til að sýna fram á færni sína í íslensku með áreiðanlegu prófi. Meginmarkmið verkefnisins er að þróa, framkvæma og viðhalda stöðluðum og viðurkenndum stöðuprófum í íslensku sem öðru máli á stigum A2-B2 Evrópska tungumálarammans. Um er að ræða tveggja ára tilraunaverkefni sem byggir á þingsályktun um aðgerðaráætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023-2026 og er styrkt er af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Við Miðstöðina starfa sérfræðingar Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands í annarsmálsfræðum sem hafa um árabil unnið að rannsóknum á þessu sviði og hefur starfið verið leitt af þeim Maríu Önnu Garðarsdóttur og Sigríði D. Þorvaldsdóttur. Auk áðurnefndra verkefna mun miðstöðin einnig veita ráðgjöf og miðla upplýsingum um tungumálrammann og aðlögun íslenskuprófa að honum til fræðsluaðila, t.d. framhaldsskóla, málaskóla og sveitarfélaga. Þá verða einnig gerðar rannsóknir á niðurstöðum prófanna svo tryggja megi réttmæti þeirra og til að auka þekkingu á því hvaða kröfur gera eigi til málfærni við ólíkar aðstæður. Þeirri þekkingu verður síðan miðlað með útgefnu stuðningsefni fyrir kennara og námsefnishöfunda á ólíkum skólastigum og með leiðbeiningum fyrir nemendur.
Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, segir að Miðstöð um íslenskupróf sé mikið hagsmunamál fyrir innflytjendur þar sem hún muni stuðla að markvissari kennslu og aukinni þekkingu á alþjóðlegum viðmiðum. Vonandi muni það leiða til virkari þátttöku innflytjenda í íslensku samfélagi.
