Ásta Björk Björnsdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í upplýsingafræði

„Ég held að forvitni sé lykill að námsárangri,“ segir Ásta Björk Björnsdóttir frá Borgarnesi, sem útskrifaðist með meistaragráðu í upplýsingafræði frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.
Ásta er grunnskólakennari að mennt, með framhaldsnám í sérkennslufræðum, og starfaði um árabil sem sérkennsluráðgjafi í leik- og grunnskólum á Suður- og Vesturlandi. Hún ákvað að fara í upplýsingafræði eftir að hún tók við starfi safnstjóra á skólasafni í grunnskóla og fann að hana vantaði sterkari faglegan grunn á því sviði.
„Ég ætlaði fyrst aðeins að ljúka diplómu en námið reyndist bæði skemmtilegra og praktískara en ég hafði séð fyrir mér svo ég endaði á að ljúka MIS-gráðu,“ segir hún.
Í náminu lagði Ásta áherslu á upplýsingahegðun, skipulagningu og miðlun upplýsinga og þekkingar. Hún segir námið hafa nýst sér einstaklega vel í starfi þar sem hún gat tengt nánast öll verkefni við skólasöfn. „Ég er búin að fá mikinn tíma til að skoða starfið mitt í fræðilegu samhengi, sem er frábært og gerir að ég hlakka mikið til að mæta í vinnuna í haust.“
Ásta segir fjarnám hafa skipt sköpum fyrir sig sem landsbyggðartúttu frá Borgarnesi. Hún hefði líklega ekki farið af stað í námið ef hún hefði þurft að flytja til Reykjavíkur.
Námið var þó ekki án áskorana. Ásta er með ADHD og segir að það hafi krafist mikils skipulags að stunda nám með vinnu. Hún setti sér það markmið að klára námið, frekar en að stefna að fullkomnun, og lærði meðal annars að tímamæla vinnuna sína og átta sig betur á því hvað verkefni tækju langan tíma.
Síðasti vetur var henni sérstaklega erfiður þar sem sonur hennar fékk heilablóðfall síðasta sumar. Hún segir námið þó á ákveðinn hátt hafa veitt hvíld frá áhyggjum og óvissu. „Það er hvíld fyrir hugann að lesa áhugavert efni,“ segir hún.
Ásta er sérstaklega stolt af rannsókninni sinni um hvernig skólabókasöfn geta stutt við vellíðan nemenda. Þar náði hún að tengja saman nýja starfið sitt á skólasöfnum og fyrri reynslu sína af ráðgjöf um nám og velferð nemenda.
Til hamingju með glæsilegan árangur, Ásta Björk!
