Skip to main content
20. maí 2025

Árleg Aurora-ráðstefna í beinu streymi frá París

Árleg Aurora-ráðstefna í beinu streymi frá París - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fulltrúar Háskóla Íslands taka þátt í árlegri ráðstefnu Aurora-háskólanetsins dagana 19.-22. maí í París í Frakklandi. Hægt verður að fylgjast með hluta ráðstefnunnar í streymi, bæði pallborðsumræðum og vinnustofu um samþættingu heimsmarkmiðanna við kennsluaðferðir.

Háskólinn Université Paris-Est Créteil hefur veg og vanda af skipulagi ráðstefnunnar í ár. Fulltrúar frá HÍ leika lykilhlutverk í dagskránni en þeirra á meðal eru rektor, aðstoðarrektorar, akademískir starfsmenn, starfsfólk stjórnsýslu og stúdentar. Ráðstefnunni lýkur með sjálfbærniþingi (e. Aurora Sustainability Summit) þar sem fulltrúar Sjálfbærnistofnunar HÍ eru í hópi fyrirlesara og þátttakenda.

Samhliða ráðstefnunni verða haldnir fjölmargir fundir í vinnuhópum Aurora-samstarfsins og opnar vinnustofur.

Öll áhugasöm geta fylgst með kynningum og umræðum á opnum viðburðum í beinu streymi frá París:

Athugið að tímasetningar í dagskránni eru gefnar upp á evrópskum sumartíma svo erindi hefjast tveimur klukkustundum fyrr að íslenskum tíma.

Aurora er samstarfsnet öflugra evrópskra rannsóknaháskóla sem vinna saman að því að efla kennsluþróun, rannsóknir og nýsköpun í starfsemi háskóla til að mæta brýnum samfélagslegum áskorunum.

Frá opnunarhátíðinni í Sorbonne.