Upplýsingafræði - Örnám


Upplýsingafræði
Örnám á framhaldsstigi – 30 einingar
Örnám í upplýsingafræði er stutt námsleið sem kennd er í fjarnámi og gefur þér tækifæri til að bæta við þig hagnýtri sérþekkingu.
Skipulag náms
- Haust
- Grunnþættir starfa innan bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingastofnana
- Upplýsingaleitir og stafræn miðlun
- Vor
- Upplýsingahegðun og upplýsingalæsi: Kenningar og rannsóknir
Grunnþættir starfa innan bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingastofnana (UPP114F)
Nútímasamfélög treysta á að upplýsingar séu áreiðanlegar, að skjöl séu unnin á gagnsæjan hátt og að fólk geti ratað um sífellt flóknara upplýsingalandslag. Námskeiðið fjallar um hvernig bókasöfn, skjalasöfn og aðrar þekkingarstofnanir gegna mikilvægu lýðræðislegu og samfélagslegu hlutverki, hvort sem það er í opinbera geiranum, í menningarstofnunum, innan stjórnsýslunnar eða í einkageiranum. Horft er sérstaklega á þessi hlutverk í ljósi stafrænnar umbreytingar, gervigreindar og aukinna rangupplýsinga/falsupplýsinga. Námskeiðið tengir saman stefnumótun, faglega vinnu og fræðilegar hugmyndir til að skoða hvernig bókasöfn, skjalasöfn og upplýsingastofnanir styðja fólk við að takast á við upplýsingar á ólíkum tímum og í mismunandi aðstæðum í lífinu. Rýnt er í hvernig reglur, stofnanamenning og fagleg hlutverk hafa áhrif á traust, þátttöku, ábyrgð og lýðræðislega ferla. Byggt er á þverfaglegum og norrænum rannsóknum til að skapa sameiginlegan hugmyndalegan grunn í bókasafns- og upplýsingafræði og skjala- og upplýsingaastjórnun. Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir frekara nám og fagleg störf.
Upplýsingaleitir og stafræn miðlun (UPP215F)
Námskeiðið byggir á tveimur samofnum stoðum: upplýsingaleit og stafrænni miðlun. Annars vegar er fjallað um hvernig má nálgast, meta og nýta upplýsingar í síbreytilegu umhverfi, þar sem sérstök áhersla er lögð á hvernig nýta má gervigreind til að fínpússa leitir og vinna úr texta. Hins vegar er sjónum beint að stafrænum samskiptum og stefnumótun, þar sem notkun samfélagsmiðla við þekkingarmiðlun er í forgrunni. Markmiðið er að nemendur öðlist heildstæða færni í að finna áreiðanlegar upplýsingar og miðla þeim áfram til ólíkra hópa á skýran og ábyrgan hátt.
Upplýsingahegðun og upplýsingalæsi: Kenningar og rannsóknir (UPP109F)
Hvernig einstaklingar leita að, nota, miðla og skilja upplýsingar ræðst af því hverjir þeir eru, hvað þeir eru að gera og í hvaða aðstæðum þeir starfa. Kynntar eru helstu kenningar og rannsóknarhefðir í upplýsingafræði sem skýra upplýsingahegðun, upplýsingalæsi og stafrænt læsi, ásamt miðlun upplýsinga í fjölbreyttu félagslegu og tæknilegu samhengi. Námskeiðið veitir fræðilegan grunn til að skilja upplýsingavenjur í daglegu lífi, námi, starfi og samfélagsþátttöku. Fjallað er um hvernig upplýsingavenjur mótast af samfélaginu, tækninni sem við notum og þeim stofnunum sem við treystum og sérstök áhersla lögð á ójöfnuð, útilokun og stafræna gjá. Skoðað er hvernig mismunandi hópar mæta hindrunum í aðgangi að upplýsingum og notkun þeirra og hvernig stofnanir, tækni og milliliðir hafa áhrif á möguleika fólks til þátttöku og virkni. Námskeiðið styður nemendur í að túlka og beita fræðilegri þekkingu með því að byggja á klassískum og nýlegum rannsóknum í upplýsingafræði og gagnrýna nálgun á kenningar, líkön og rannsóknir.
Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Fylgstu með Félagsvísindasviði

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.

