Skip to main content

Rannsóknatengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar

Rannsóknatengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. september 2026 8:30 til 10:30
Hvar 

Gróska

Fyrirlestrarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vísindi, rannsóknir og nýsköpun mynda hryggjarstykkið í nýrri atvinnustefnu stjórnvalda og eru um leið hluti af grundvallarstarfi háskóla. Örar tækni- og samfélagsbreytingar kalla á víðtækar grunnrannsóknir þvert á fræðasvið til að mæta þörfum framtíðar. 

Á málstofu í Grósku föstudaginn 4. september verður fjallað um hlutverk háskóla í þessu breytta umhverfi meðal annars út frá gervigreind og grunnrannsóknum, innviða- og gagnastefnu og stefnumörkun í stuðningsumhverfi nýsköpunar eins og uppbyggingu djúptækni á Íslandi. Hvers konar stuðningur, umgjörð og samfélag þarf að vera til staðar til að hlúa að samspili vísindarannsókna og nýsköpunar sem þjónar íslensku samfélagi og stuðlar að heilbrigði, velferð og sjálfbærni til framtíðar? 

Fundurinn er opinn öllum og er liður í að halda áfram mikilvægu samtali þvert á háskóla og stjórnvöld um rannsóknatengda nýsköpun. 

Boðið er upp á stutt erindi og umræður undir stjórn Rögnvaldar J. Sæmundssonar, aðstoðarrektors vísinda og þverfræðileika hjá HÍ. 

Auk hans taka til máls:

  • Maria Theresa Norn,  aðstoðarframkvæmdastjóri Nýsköpunarsviðs Tækniháskólans í Danmörku (DTU), og dósent í nýsköpunarstefnu. 
  • Kristinn R. Þórisson, prófessor í tölvunarfræði hjá Háskólanum í Reykjavík og stofnandi Vitvélastofnunar Íslands.
  • Eiríkur Stephensen, rannsóknainnviðastjóri Háskóla Íslands.
  • Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða.
  • Kristján Guy Burgess, sérfræðingur hjá Menningar-, nýsköpunar-  og háskólaráðuneytinu.

Málstofan fer fram á ensku.

Öll velkomin, skráning fer fram hér.

Vísindi, rannsóknir og nýsköpun mynda hryggjarstykkið í nýrri atvinnustefnu stjórnvalda og eru um leið hluti af grundvallarstarfi háskóla. Örar tækni- og samfélagsbreytingar kalla á víðtækar grunnrannsóknir þvert á fræðasvið til að mæta þörfum framtíðar.

Rannsóknatengd nýsköpun sem mætir þörfum framtíðar