Skip to main content

Pöddulíf í Elliðaárdal - Með fróðleik í fararnesti 

Pöddulíf í Elliðaárdal - Með fróðleik í fararnesti  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. júní 2026 18:00 til 20:00
Hvar 

Gamla rafstöðin

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Viltu sjá pöddur í návígi? Skordýr er fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Munum við finna moskítóflugur eða lúsmý?

Þeir Ólafur Patrick Ólafsson kennari í líffræði við HÍ og  Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði og einn helsti sérfræðingur landsins á sviði skordýra, munu fræða okkur um heim skordýranna ásamt fjölda líffræðinema við HÍ.

Takið með ílát og stækkunargler ef þið eigið. Ekki gleyma nesti.

Tími: 2-3 klst

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!

Mæting
Kl. 18 frá gömlu rafstöðinni við Elliðaár.