Opinn fundur um niðurstöður PISA
![Opinn fundur um niðurstöður PISA - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir/KRI_handrit_151120_009xx.jpg?itok=bSD3o1rr)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun boða til kynningarfundar um niðurstöður PISA-könnunarinnar 2018. Á fundinum munu sérfræðingar kynna niðurstöður, greina þær og kynna tillögur að mögulegum framfaraskrefum.
Fundinum verður streymt á eftirfarandi slóð: https://bit.ly/336BSQM
Dagskrá
Setning: Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar
Niðurstöður PISA 2018: Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur, Menntamálastofnun
Staða og þróun lesskilnings í niðurstöðum PISA: Sigríður Ólafsdóttir, lektor og Baldur Sigurðsson, dósent, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Rýnt í niðurstöður PISA um stærðfræðilæsi á Íslandi: Freyja Hreinsdóttir, dósent, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Greining niðurstaðna á stöðu læsis á náttúrufræði: Auður Pálsdóttir, lektor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Samantekt og viðbrögð: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Ávarp: Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Umræður
Fundarstjóri: Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Vakin er athygli á að á vorönn 2020 munu Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun standa fyrir röð málstofa þar sem fjallað verður nánar um niðurstöður PISA-rannsóknarinnar á einstökum sviðum.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun boða til kynningarfundar um niðurstöður PISA-könnunarinnar 2018. Á fundinum munu sérfræðingar kynna niðurstöður, greina þær og kynna tillögur að mögulegum framfaraskrefum.
![Opinn fundur um niðurstöður PISA](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4vbq7.jpg?itok=9ED5V9iA)