Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu

Grótta
Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira, í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf.
Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ og vísindamiðlari, og líffræðinemar við HÍ munu leiða gönguna og svara spurningum.
Fjöruferðin er hluti af Með fróðleik í fararnesti, verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands.
Gott er að mæta vel klædd, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum.
Ekki gleyma nesti.
Fjöruferðin tekur um 2 klst.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!
Mæting kl. 12.00 á bílastæðinu við Gróttuvita.
Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira, í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf. Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ og vísindamiðlari, og líffræðinemar við HÍ munu leiða gönguna og svara spurningum.
