Málþing til heiðurs Sigurði S. Snorrasyni og Hrefnu Sigurjónsdóttur
Askja
Stofa 132
Hjónin og líffræðingarnir Hrefna Sigurjónsdóttir og Sigurður S. Snorrason urðu sjötug á árunum 2020 og 2021, og létu af störfum hjá Háskóla Íslands eftir farsælan feril.
Að því tilefni er efnt til málþings þeim til heiðurs. Samstarfsmenn, vinir og fyrrum nemendur munu fjalla um störf þeirra og rannsóknir á vistfræði, þróun og atferli dýra, einnig segja frá persónulegum kynnum og rifja upp skemmtilega atburði.
15:00 Setning
Sigurður Magnús Garðarsson - forseti Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
15:05 - Yfirlit um nám og feril Sigurðar og Hrefnu
Börkur Hansen og Arnar Pálsson
15:20 - Rannsóknir og vísindaleg viðfangsefni
Skúli Skúlason, Bjarni Kristófer Kristjánsson, Kalina H. Kapralova og Sandra Granquist
16:05 - Tónlist
16:15 - Samferðamenn líta yfir farinn veg
Gísli Már Gíslason, Sólrún Harðardóttir, Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir og Karl Gunnarsson
17:00 - Móttaka (3 hæð Öskju)
Sigurður S. Snorrason og Hrefna Sigurjónsdóttir