Skip to main content

Málþing til heiðurs Guðmundi Hálfdanarsyni

Málþing til heiðurs Guðmundi Hálfdanarsyni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. júní 2026 13:30 til 16:00
Hvar 

Þjóðminjasafn

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni sjötugsafmælis Guðmundar Hálfdanarsonar prófessors í sagnfræði og starfsloka hans við Háskóla Íslands býður Sagnfræðistofnun HÍ til málþings í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns hinn 5. júní næstkomandi kl. 13:30-16:00. Þar munu doktorsnemar Guðmundur halda stutt en snörp erindi sem á einn eða annan hátt tengjast rannsóknum hans og öðrum störfum í gegnum tíðina.

Að málþinginu loknu verður móttaka í bókastofunni á fyrstu hæð í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Allir velkomnir.

Dagskrá:

  • Silja Bára Ómarsdóttir rektor HÍ. Ávarp
  • Erla Hulda Halldórsdóttir. Svolítið um þau hjón Ingibjörgu og Jón
  • Ragnheiður Kristjánsdóttir. Klukkan hjá Rússum
  • Einar Einarsson. Fordyri menningarlegrar þjóðernisstefnu? Arngrímur Jónsson og húmanísk ættjarðarhyggja
  • Unnur Birna Karlsdóttir. Frá hugmynd til rannsóknar
  • Hrafnkell Lárusson. Lýðræði og samstarf

14:30-15:00 Kaffihlé

  • Sigríður Matthíasdóttir. Íslandssaga III – 1993
  • Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Að gagnrýna sig sjálfan
  • Ólafur Arnar Sveinsson. Frá Aðalbóli til Athabold. Sjálfsmyndir  og auðkenni í Vesturheimi
  • Astrid Lelarge. The contribution of history to urban planning practice
  • Vilhelm Vilhelmsson. Strategíur flakkara og viðhorf bænda á 18. og 19. öld: Nokkrar vísbendingar úr dómsskjölum
  • Ólafur Rastrick. Örfá orð um rannsóknir mínar að loknu doktorsprófi
  • Guðmundur Hálfdanarson. Nokkur orð

Fundarstóri: Anna Agnarsdóttir, prófessor emeritus í sagnfræði

Guðmundur Hálfdanarson prófessor emeritus

Málþing til heiðurs Guðmundi Hálfdanarsyni