Skip to main content

Líffræði og eiginleikar straumvatna í Færeyjum

Líffræði og eiginleikar straumvatna í Færeyjum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. júní 2026 11:00 til 12:00
Hvar 

Askja

121

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðbiksmat doktorsnemans Janusar Hansen.

Doktorsritgerðin hans heitir "Líffræði og eiginleikar straumvatna í Færeyjum”

Ágrip.

Vistfræði ferskvatna í Færeyjum eru tegundafátæk og mótuð af landslagi og berggrunni eyjanna. Vistkerfin straumvatna eyjanna hafa ekki verið mikið rannsökuð.

Doktorsverkefnið leitast við að bæta úr þessu. Niðurstöður liggja fyrir um eiginleika straumvatna eyjanna, sem eru aðallega stuttir lækir með breytilegt vatnsmagn (flæði). Náttúrufarslýsing liggur einnig fyrir og gerð var ítarleg rannsókn á dreifingu nokkra tegunda flugna. Sérstaklega á landfræðilega dreifingu vorflugna (e. Trichoptera) um eyjarnar og árstíðarsveiflur í rykmýi (e. Chironomidae).

 Leiðbeinendur eru Gísli Már Gíslason og Jón S. Ólafsson. Umsjónarkennari er Arnar Pálsson.

Ár og lækir í Færeyjum mótast sterklega af bröttum hlíðum og mismiklu vatni á vatnasviðum eftir árstíðum og veðráttu, og vistkerfi þeirra einnig.

Líffræði og eiginleikar straumvatna í Færeyjum