Íslenskukennsla á tímamótum

Edda
Íslenskukennsla á tímamótum - Styðjum kennara með verkfærum sem virka
Málþing um orðaforðarannsóknir í EDDU
6. maí 2026 kl. 15.30–17.30
Haldið verður málþing um námsorðaforða og læsi. Kynnt verður staðan hér á landi, fjallað um tungumál skólans sem forsendu námsárangurs, um gagnreyndar kennsluaðferðir sem henta fjölbreyttum nemendahópum og hvernig er gagnlegt að styðja kennara í þeirra flóknu verkefnum.
Málþingið er haldið að frumkvæði Íslenskrar málnefndar í samstarfi við sérfræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Flutt verða fjögur stutt erindi. Þau flytja:
Ármann Jakobsson, Íslensku- og menningardeild, Hugvísindasviði HÍ
Elín Þöll Þórðardóttir, McGill háskóla í Quebec, Kanada.
Auður Pálsdóttir, Deild faggreinakennslu, Menntavísindasviði HÍ
Sigríður Ólafsdóttir, Deild faggreinakennslu, Manntavísindasviði HÍ
Í pallborði verða alþingismenn og forystufólk úr Kennarasambandi Íslands.
Fyrir málþingið verðar birtar greinar um hvert erindi í tímaritinu Málfregnir.