Skip to main content

Doktorsvörn í Menntavísindum: Anna Katarzyna Wozniczka

Doktorsvörn í Menntavísindum: Anna Katarzyna Wozniczka  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. júní 2025 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Anna Katarzyna Wozniczka ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands.

Vörnin fer fram þriðjudaginn 3. júní kl. 13:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands og verður einnig streymi. 

Hlekkur á streymi

Heiti ritgerðar: Inclusion of immigrant students in Iceland: Interplay of practices in compulsory schools, teacher education and research

Andmælendur: Dr Ghazala Bhatti rannsakandi (e. Honorary Research Fellow) við Oxford Háskóla, Bretlandi og dr. Gry Paulgaard prófessor emeritus við UiT Norðurslóðaháskólann í Noregi, Tromsø.

Aðalleiðbeinandi: dr. Hafdís Guðjónsdóttir prófessor emerita við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi dr. Per-Åke Rosvall prófessor við Umeå Háskóla í Svíþjóð.

Auk þeirra sat í doktorsnefnd dr. Mariana Souto-Manning, rektor (e. President) Erikson Institute í Bandaríkjunum og dr. Edda Óskarsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Stjórnandi athafnar: Dr. Svava Pétursdóttir, lektor við Deild kennslu- og menntunarfræði stjórnar athöfninni.

Verið öll velkomin!

Um doktorsefnið:

Anna Katarzyna Wozniczka ólst upp í Póllandi og flutti til Íslands árið 2006. Hún er með MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Viðskiptaháskóla í Katowice, Póllandi og lauk MA prófi í alþjóðlegu námi í menntunarfræði frá HÍ árið 2011. Frá árinu 2014 hefur Anna reglulega sinnt kennslu, leiðsögn og rannsóknum sem snúa að vinnu með fjölbreyttum nemendahópum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Sem hluta af doktorsnámi varði hún hálfu ári í starfsnámi hjá OECD í París, Frakklandi. Anna hefur áður starfað á leikskóla á Íslandi þar sem áhugi á menntamálum innflytjenda kviknaði og komið síðan að kennslu fullorðinna innflytjenda. Hún var forstöðukona Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi frá lok 2013 til 2016 og hefur verið sjálfboðaliði í jafningjaráðgjöf í samtökunum í áratug. Frá árinu 2020 hefur Anna starfað sem verkefnastjóri í málefnum flóttamanna hjá sveitarfélaginu Árborg. Hún er einnig formaður Atvinnu- og menningarnefndar í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem hún býr ásamt sambýlismanni sínum Hans Guðmundi Magnússyni.

Um  verkefnið:

Hröð fjölgun innflytjenda til Íslands undanfarna tvo áratugi hefur aukið fjölbreytni í skólum og vakið áhuga menntarannsakenda á fjölmenningu og inngildingu. Í doktorsrannsókninni, „Inngilding nemenda af erlendum uppruna á Íslandi: Samspil skólastarfs, kennaramenntunar og rannsókna“ er rannsakað hvernig skólar, kennaramenntun og rannsóknir hafa áhrif á nám og upplifun nemenda með innflytjendabakgrunn. Skoðað var hvernig íslenskir grunnskólar, bæði í dreifbýli og þéttbýli, ásamt kennaramenntun og rannsóknum, stuðla að tækifærum til inngildandi menntunar.

Meginrannsóknarspurning rannsóknarinnar var: Hvernig taka menntakerfið og menntarannsóknir þátt í að efla, þróa og viðhalda inngildandi starfsháttum sem nýta félagslegar, tungumála- og menningarlegar auðlindir allra? Ýmsar rannsóknir á menntun án aðgreiningar og fjölmenningar hafa verið gerðar, en þessi rannsókn bætir við með því að skoða samspil rannsókna, kennaramenntunar og skólastarfs. Niðurstöður hennar leggja sitt af mörkum til fræðanna með því að bjóða upp á inngildandi sýn á menningarlega fjölbreytni í menntun.

Í rannsókninni var fjölbreyttum eigindlegum aðferðum beitt við gagnaöflun, þar á meðal vettvangsathugunum, hálfopnum viðtölum við kennara og innflytjendabörn, starfstengdri sjálfsrýni í samvinnu við kennaramenntunarkennara og gagnrýna sjálfsævisögulega nálgun þar sem rýnt er í hlutverk rannsakandans. Gögnin voru kóðuð, þemu greind og túlkuð út frá fræðilegum ramma um skóla án aðgreiningar (inngildingar), gagnrýna kennslufræði og vistkerfi réttlætis.

Helstu niðurstöður varpa ljósi á mikilvægi kennara sem hreyfiafls í innleiðingu inngildandi menntunar. Þrátt fyrir takmarkaða reynslu eða úrræði leggja margir kennarar sig fram við að virkja alla nemendur í námi. Staðbundinn stuðningur og samskipti byggð á umhyggju innan skólanna styrkja tilfinningu nemenda fyrir því að þeir tilheyri. Hins vegar krefjast kerfislægar áskoranir, eins og takmarkaðar auðlindir og lýðfræðilegar breytingar, víðtækari umbóta. Viðbrögð frá kennurum í kennaramenntun undirstrika mikilvægi þess að efla samræður í kennslustofunni til að virkja fjölbreytta nemendahópa, á meðan gagnrýnin sjálfsævisaga rannsakanda sýnir fram á nauðsyn ígrundunar til að koma í veg fyrir að persónulegar forsendur hafi áhrif á niðurstöður. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þverfaglegrar samvinnu til að efla jöfnuð og inngildingu í sífellt fjölbreyttara menntalandslagi Íslands.