Alþjóðleg ráðstefna um uppbyggingu velsældarhagkerfa
Aðalbygging
Hátíðasalur
Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Wellbeeing Economy Goverments og OECD standa saman að ráðstefnu um uppbyggingu velsældarhagkerfa í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands mánudaginn 16. september, kl. 8.30-12.
Á ráðstefnunni verður fjallað um samstarf Íslands, Skotlands og Nýja-Sjálands um mótun velsældarhagkerfa undir yfirskriftinni Wellbeing Economy Governments (WEGo). Samstarfið felur í sér mótun sameiginlegrar sýnar á hvernig ríki geta aukið vellíðan, jöfnuð og sjálfbæran vöxt.
Á ráðstefnunni verða leiddir saman alþjóðlegir leiðtogar og sérfræðingar á sviði velsældarmála, þar á meðal úr Háskóla Íslands. Þá mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra meðal annars kynna tillögur nefndar að velsældarmælikvörðum fyrir Ísland sem verða lýsandi fyrir hagsæld og lífsgæði á Íslandi.
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Kaffi og te í boði frá kl. 8.
Dagskrá:
8:30-10:00
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Derek Mackay, fjármála- og efnahagsráðherra Skotlands
Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
10:00-10:30 Kaffihlé
10:30-11:50 Pallborðsumræður með frummælendum
Dr. Gary Gillespie, efnahagsráðgjafi skosku heimastjórnarinnar, stýrir pallborðsumræðum
Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Wellbeeing Economy Goverments og OECD standa saman að ráðstefnu um uppbyggingu velsældarhagkerfa í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands mánudaginn 16. september, kl. 8.30-12.