Doktorsvörn í matvælafræði - Yuetuan Zhang

Edda
E - 218
Föstudaginn 28. ágúst ver Yuetuan Zhang doktorsritgerð sína í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Breytileiki lífvirkra efnasambanda í ætu íslensku þangi. Quantitative variations of bioactive compounds in Icelandic edible seaweeds.
Andmælendur eru dr. Dagbjørn Skipnes, vísindamaður við Nofima AS, Noregi, og dr. Susan Løvstad Holdt, dósent við Danmarks Tekniske Universitet.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi voru Björn Viðar Aðalbjörnsson, dósent og Guðjón Þorkelsson, prófessor. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Hörður Guðjón Kristinsson, rannsókna- og vöruþróunarstjóri, og Hildur Inga Sveinsdóttir, lektor.
Ólafur Ögmundarson, dósent og deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Eddu, E–218, og hefst kl. 9.00.
Ágrip
Í doktorsverkefninu voru þróaðar greiningaraðferðir til að mæla lykil-lífvirk efni í ætu íslensku þangi, þar á meðal fucoxanthin og lífvirkar vatnsleysanlegar fjölsykrur. Niðurstöðurnar sýna að íslenskt þang er verðmæt uppspretta næringarefna og lífvirkra efnasambanda, með möguleika til aukinnar nýtingar í matvælaiðnaði. Innihald vara á alþjóðamarkaði með fucoidan-sykrur var einnig rannsakað. Rannsóknin veitir mikilvæga þekkingu á efnasamsetningu og næringargildi íslenskra þangtegunda.
Abstract
In the PhD project, quantitative analytical methods to measure key bioactive compounds in edible Icelandic seaweeds, including fucoxanthin, and water-soluble polysaccharides developed and validated. The findings demonstrate that Icelandic seaweeds are a valuable source of nutrients and bioactive compounds with promising applications in the food industry. Fucoidan composition of samples from international market samples were analyzed. The study provides important new insights into the chemical composition and nutritional value of Icelandic seaweed species.
Um doktorsefnið
Yuetuan Zhang er fædd árið 1990 í Kína. Hún lauk BS-gráðu í matvælafræði og matvælaverkfræði við Harbin University of Commerce í Kína árið 2012. Eftir það hélt hún áfram námi og lauk meistaragráðu í matvælafræði við Háskólann í Helsinki árið 2015. Í doktorsnáminu við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands var hún einnig við Háskólann í Helsinki í eitt ár sem skiptinemi með Erasmus-styrk og vann þar að rannsóknum. Doktorsverkefni hennar fékk einnig eins árs styrk frá Háskólanum og Háskólasjóði Eimskipafélagsins.
Yuetuan Zhangver doktorsritgerð sína í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands föstudaginn 05. maí 2026.
