Skip to main content

Bókakynning: Postwar Mnemonic Anti-Fascism og The Scientific Military State

Bókakynning: Postwar Mnemonic Anti-Fascism og The Scientific Military State - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. ágúst 2026 16:15 til 17:45
Hvar 

Árnagarður

Stofa 301

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrsti viðburður haustsins á vegum Sagnfræðistofnunar verður kynning á tveimur nýjum sagnfræðiritum í stofu 301 í Árnagarði, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 16:15. Sagnfræðistofnun býður til móttöku á eftir í Árnagarði (kl. ca. 17:45). Kynntar verða bækurnar Postwar Mnemonic Anti-Fascism eftir Pontus Järvstad og The Scientific Military State eftir Svein Mána Jóhannesson.

Postwar Mnemonic Anti-Fascism eftir Pontus Järvstad

Pontus Järvstad útskrifaðist með doktorsgráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2024. Doktorsritgerð hans hlaut dönsku verkalýðssöguverðlaunin sama ár (Arbejderhistorieprisen). Hann lauk nýlega eins árs nýdoktorsstyrk við Rannsóknasetur EDDU á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Samhliða rannsóknum og stundakennslu þar starfar hann einnig sem sögukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð.

Postwar Mnemonic Anti-Fascism: From the Spanish Question to the Nordic Committees against the Greek Junta, 1946–1974, kom út hjá Routledge skömmu fyrir áramót. Bókin fjallar um hvernig andfasisminn breyttist á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina og um starf þverþjóðlegrar norrænnar félagshreyfingar sem barðist gegn herforingjastjórninni í Grikklandi eftir valdarán hennar árið 1967. Þessi þverþjóðlega hreyfing sóttist eftir stuðningi með því að vísa til sögulegra minninga, einkum spænsku borgarastyrjaldarinnar og hernáms Danmörku og Noregi. Litið var svo á að valdaránið í Grikklandi markaði pólitísk þáttaskil sem græfi undan lýðræðisskipulaginu og yki hættuna á að fasismi næði aftur fótfestu í Evrópu.

Sjá nánar á vef útgefanda.

The Scientific Military State eftir Svein Mána Jóhannesson

Sveinn Máni Jóhannesson lauk doktorsprófi frá Cambridge-háskóla árið 2019 og er rannsóknarsérfræðingur hjá Rannsóknasetrinu EDDU við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Áður gegndi hann stöðu nýdoktors við Edinborgarháskóla og Sagnfræðistofnun HÍ. Frá og með september 2026 mun Sveinn Máni gegna Koch-rannsóknarstöðu í sagnfræði við Oxford-háskóla. 

Í bókinni The Scientific-Military State: How Enlightened Engineers Reinvented Early American Government (University of Chicago Press) er sjónum beint að áhrifum upplýsingarinnar og byltingaaldar á þróun nútímaríkisins í Bandaríkjunum frá stofnun þeirra árið 1776 fram að miðri nítjándu öld. Fjallað er um hvernig bandarískir stjórnmálamenn og teknókratar hafi nýtt sér nýjungar í Frakklandi á sviði vísinda, tækni, menntunar og hernaðar til að bregðast við alþjóðlegri kreppu í ríkisfjármálum. Þetta leiddi til umbreytinga á ríkisvaldinu þar sem hefðbundin stjórntæki voru lögð til hliðar og stuðst við nýjar hugmyndir, stofnanaumfjörð og stjórnvaldstækni. Sérfræðingar mótuðu nýjar ríkisstofnanir á grundvelli tækniveldis og byggðu upp umfangsmikla innviði sem gerbreyttu hernaði og hernaðargetu Bandaríkjanna gegn evrópskum heimsveldum. Þessi þáttur í uppbyggingu bandaríska ríkisins hefur ekki verið rannsakaður áður, en með þessu var enn fremur lagður grunnur að umfangsmiklum landvinningum þar sem frumþjóðir voru hraktar af landi sínu. Um leið varð til nýtt hlutverk fyrir alríkið í efnahagsstjórn landsins — meðal annars með notkun á vinnuafli þræla. Þannig var ekki aðeins samband hins opinbera við borgarana endurskilgreint, heldur voru valdatengsl innan amerísks samfélags endurmótuð.

Sjá nánar á vef útgefanda.

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands býður til kynningar á bókunum Postwar Mnemonic Anti-Fascism eftir Pontus Järvstad og The Scientific Military State eftir Svein Mána Jóhannesson.

Bókakynning: Postwar Mnemonic Anti-Fascism og The Scientific Military State