Skip to main content
8. júlí 2026

Vísindamenn HÍ fá styrki úr markáætlun um náttúruvá

Vísindamenn HÍ fá styrki úr markáætlun um náttúruvá - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindamenn við Háskóla Íslands koma að öllum fimm verkefnunum sem fengið hafa styrk úr markáætlun um náttúruvá sem heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Heildarupphæð styrkja nemur um 600 milljónum króna.

Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að markáætlun um náttúruvá sé ætlað að undirbúa land og þjóð betur fyrir atburði sem tengjast náttúruhamförum og öfgum náttúruafla, ásamt því að bregðast við þeim á skipulegan hátt „Markáætluninni er ætlað að styðja við nýsköpunarmiðað þekkingarsamfélag, sem nýtir öflugar grunnrannsóknir og hagnýta þekkingu til að takast á við áskoranir sem tengjast náttúruvá og miðla þekkingu til almennings og stjórnvalda,“ segir enn fremur á vefnum. 

Verkefnin fimm voru kynnt nýverið í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu að viðstöddum ráðherra og gestum. Markmið verkefnanna er að stórefla þekkingu, bæta forvarnir og styðja við betri ákvarðanatöku þegar náttúruógnir steðja að. 

Eftirfarandi verkefni fengu styrk:

REY-READY: Ætlunin er að þróa nýjar aðferðir til að vakta jarðskjálfta og kvikuhreyfingar á Reykjanesskaga og bæta forspárgetu og áhættumat fyrir eitt virkasta eldfjallasvæði landsins.

Að lifa við vá: Efling færni til að takast á veður og draga úr áhættu á hálendi Íslands: Rannsóknin beinist að því hvernig björgunarsveitir, ferðaþjónustuaðilar og veðurstofur túlka, miðla og bregðast við veðurupplýsingum í flóknum aðstæðum. Markmiðið að efla öryggi, draga úr áhættu og styrkja seiglu samfélaga og ferðaþjónustu og útbúa m.a. sérsniðið öryggisnámskeið fyrir þau sem starfa í aðstæðum þar sem veður getur verið ófyrirsjáanlegt og krefjandi. 

Ljósvari - Vöktun náttúruvár með fjarskiptainnviðum: Ætlunin er að nýta ljósleiðarainnviði landsins til að fylgjast með eldgosum, skriðuföllum og snjóflóðum í rauntíma og styrkja þannig náttúruvárvöktun með nýrri tækni.

TRACE: Sviðsmyndir eldfjallavár tengdri jarðsorpuhreyfingum við Krýsuvík: Til stendur að rannsaka mögulega framtíðarvirkni eldstöðvakerfisins í Krýsuvík. Það mun bæta skilning á áhættu sem tengist jarðskorpuhreyfingum á svæði sem nær að útjaðri höfuðborgarsvæðisins.

INSPIRE: Aukinn viðbúnaður gegn jarðskjálftavá og samþætt áhættustjórnun á Íslandi: Markmiðið er að þróa umgjörð til að meta og draga úr jarðskjálftaáhættu á Íslandi og styðja við hraða og markvissa ákvarðanatöku eftir náttúruhamfarir.

Nánari upplýsingar um verkefnin og aðstandendur þeirra má finna á vef menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ásamt fulltrúum verkefnanna fimm þegar þau voru kynnt í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.