Skip to main content

Doktorsvörn í eðlisfræði - Evangelos Tsolakidis

Doktorsvörn í eðlisfræði - Evangelos Tsolakidis - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. ágúst 2026 14:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/64875858090

Doktorsefni:
Evangelos Tsolakidis

Heiti ritgerðar:
Bjaganir og massar

Andmælendur:
Dr. Sayed Fawad Hassan, prófessor í kennilegri eðlisfræði við Stokkhólmsháskóla, Svíþjóð
Dr. Roberto Tateo, prófessor í kennilegri eðlisfræði við Háskólann í Tórínó, Ítalíu

Leiðbeinandi:
Dr. Valentina Giangreco M Puletti, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Friðrik Freyr Gautason, lektor í strengjafræði við stærðfræðideild Háskólann í Southampton, Bretlandi (Aðalleiðbeinandi)
Dr. Domenico Seminara, prófessor í kennilegri eðlisfræði við Háskólann í Flórens, Ítalíu Dr. Watse Sybesma, lektor í kennilegri eðlisfræði við NORDITA, Svíþjóð
Dr. Lárus Thorlacius, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Birgir Hrafnkelsson, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar Háskóla Íslands

Ágrip:
Rannsóknir á orkuþinsbjögunum er ný undirgrein í kennilegri eðlifræði og eitt höfuðmarkmiðanna er að kortleggja rúm allra skammtasviðskenninga. Með því að líta á tengingar þeirra við safn óhefðbundinna þyngdarfræðikenninga og með brautryðjandi dæmi um hina svokölluðu TTbar bjögun í tveimur víddum að leiðarljósi þróum við nýja þyngdarfræðilega nálgun fyrir fjölskyldu af bjögunum í hvaða vídd sem er. Nálgun okkar bendir til þess að áhrif bjögunarinnar sé víxlverkun milli óbjöguðu kenningarinnar við massalið fyrir þyngdareindina. Við beitum þessum hugmyndum við ýmsar aðstæður, þar sem þekktar niðurstöður í strengjafræði og stærðfræði eru útvíkkaðar. Þetta leiðir af sér haldbæra tengingu milli massívrar þyngdarfræði og orkuþinsbjagana sem er innblásin af heilmyndunarkenningunni. Meðal annars notum við niðurstöður okkar til þess að leiða út virkni D-flata í föstum kvarða.

Um doktorsefnið:
Evan stundaði nám í eðlisfræði við Háskólann á Krít og lauk síðan meistaranámi í kennilegri eðlisfræði við Háskólann í Uppsala. Frá árinu 2022 hefur hann stundað doktorsnám undir handleiðslu Valentinu Giangreco Marotta Puletti.

Doktorsefnið Evangelos Tsolakidis

Doktorsvörn í eðlisfræði - Evangelos Tsolakidis