Skip to main content

Stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands

Samsett mynd aðalbyggingar hí og hí á hólum
Hvenær 
29. júní 2026 13:00 til 15:00
Hvar 

Háskólinn á Hólum

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mánudaginn 29. júní verður formlega stofnað til háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Athöfnin fer fram á Hólum í Hjaltadal þar sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, rektor Háskóla Íslands og rektor Háskólans á Hólum undirrita samning um stofnun háskólasamstæðunnar.

Þann 1. júní síðastliðinn samþykkti Alþingi frumvarp um háskólasamstæður sem felur í sér að Háskóli Íslands og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum mega sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands og tekur hún formlega til starfa 1. júlí næstkomandi. Með samþykkt laganna verður Háskóli Íslands samstæðuháskóli en Háskólinn á Hólum starfar sem aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum.

Samþykkt laganna marka tímamót í íslensku háskólastarfi. Markmiðið með háskólasamstæðunni er að efla samstarf háskólanna tveggja, styrkja rannsóknir, kennslu og stoðþjónustu og skapa aukin tækifæri til þverfræðilegs samstarfs og þróunar háskólastarfs um land allt. 

Á upplýsingasíðu sem sett var á laggirnar í tengslum við myndun háskólasamstæðunnar er að finna ýmsar upplýsingar um hana, þar á meðal svör við spurningum sem snerta starfsfólk og stúdenta.

Ný háskólasamstæða Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands tekur formlega til starfa 1. júlí næstkomandi.

Stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands