Fornar rætur Árbæjar - 10 ára afmælisveisla

Hvenær
28. júní 2026 13:00 til 16:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Tíu ára afmæli fornleifarannsóknarinnar Fornar rætur Árbæjar verður fagnað sunnudaginn 28. júní næstkomandi.
Dagskrá:
- 13:00 Umfjöllun um tilurð rannsóknarinnar
- 13:30 Fornleifaleiðsögn um uppgraftarsvæðin með Sólrúnu Ingu Traustadóttur, stjórnanda rannsóknarinnar
- 14:30-16:00 Fornleifafræðingar segja frá og sýna gripi sem hafa fundist, sem og tæki og tól sem hafa nýst við uppgröftinn
- 13:00-16:00 Myndasýning frá síðustu 10 árum uppgraftarins
- 13:00-16:00 Fjölskylduratleikur með fornleifaívafi
- 13:00-16:00 Teikni- og litasmiðja
Borgarsögusafn Reykjavíkur - Árbæjarsafn standa að viðburðinum í samstarfi við námsbraut í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Fyrsta árs nemendur í fornleifafræði hafa tekið þátt í rannsókninni undanfarin ár í vettvangsnámskeiði. Rannsóknin er styrkt af fornminjasjóði sem Minjastofnun Íslands úthlutar úr. Sjá nánar á Facebook.
Fyrsta árs nemendur í fornleifafræði hafa tekið þátt í rannsókn á Árbæ undanfarin ár í vettvangsnámskeiði.
