Sólmyrkvinn og geimurinn: Frá Íslandi til tungslins, sólarinnar, Artemis og áfram

Gróska
IRISS - Rannsóknastofnun Íslands í geimvísindum, Vísindagarðar Háskóla Íslands, deild NASA í sólareðlisfræði, Geimvísindastofnun Íslands (ISA) og HPC/AI gervigreindarmiðstöðin bjóða öll velkomin á málstofu þann 10. júní kl. 13:00 - 15:00 í Grósku, þar sem rædd verða tækifæri Íslands á sviði geimrannsókna og geimkönnunar.
Viðburðurinn hefst á stuttu ávarpi og síðan mun Daniel Leeb, framkvæmdastjóri ISA, flytja erindi um viðburðaríka sögu Íslands þegar kemur að geimkönnun og rannsóknum og framtíðarverkefni, frá Apollo til Artemis og áfram.
Frá tunglinu færum við okkur mun lengra í burtu eða til okkar næstu stjörnu, sólarinnar. dr. Kelly Korreck, vísindakona hjá “Living with a Star” verkefni sólareðlisfræðideildar NASA, ræðir þær sólarrannsóknir sem nú er verið að vinna að og þær rannsóknir sem gerðar verða á Íslandi í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst næstkomandi.
Morris Riedel, prófessor við HÍ, mun kynna framsæknar rannsóknir sem unnar eru í hinni nýju HPC/AI-gervigreindarmiðstöð Háskóla Íslands og tengjast fjarkönnun úr geimnum og því öfluga starfi sem HPC/AI-miðstöðin vinnur hér á jörðu niðri.
Dr. Jón Emil Guðmundsson, prófessor í stjarneðlisfræði við HÍ, mun fjalla um smíði fyrsta krýostats Íslands, sem mun gera íslenskum nemendum og vísindafólki kleift að prófa mælitæki sem ætluð eru fyrir hið miskunnarlausa umhverfi geimsins, við nær alkul.
Að lokum verða pallborðsumræður þar sem þrír starfsmenn NASA, dr. Korreck, Denise Hill rekstrarstjóri og Nicki Rayl aðstoðarframkvæmdastjóri, fjalla um margvísleg og áhugaverð starfstækifæri á sviði geimvísinda, miðlunar og geimkönnunar fyrir næstu kynslóð íslensks vísindafólks og geimkönnuða.
Veitingar verða í boði bandaríska sendiráðsins.