Skip to main content

Sveppasöfnun í Heiðmörk - Með fróðleik í fararnesti 

Sveppasöfnun í Heiðmörk - Með fróðleik í fararnesti  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. ágúst 2026 17:00 til 19:00
Hvar 

Borgarstjóraplanið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sveppir eru sælgæti en það er betra að þekkja þá góðu frá þeim vondu og eitruðu!

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, og Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ, og fleiri sveppasérfræðingar frá Háskóla Íslands kenna okkur að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða í fjörugri sveppagönguferð.

Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát.

Tími: 2 klst.

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!

Mæting
Kl. 17 á Borgarstjóraplaninu