Jón Atli aðalritstjóri bókaútgáfu stærstu samtaka tæknimenntaðra í heiminum

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, hefur tekið við sem aðalritstjóri (e. editor-in-chief) bókaútgáfu Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE) sem eru stærstu samtök tæknimenntaðra í heiminum.
Jón Atli tók við ritstjórastöðunni um áramót en hann hefur setið í ritstjórn IEEE Press frá árinu 2020. IEEE Press annast útgáfu fræðibóka um nýjustu strauma og stefnur á sviði rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði og tengdra greina auk uppflettirita. Þetta gerir IEEE Press í samstarfi við John Wiley and Sons, stóran útgefanda vísindatímarita og -bóka, undir heitinu Wiley-IEEE Press.
Ávarp Jóns Atla sem ritstjóra á vef IEEE Press.
Hlutverk aðalritstjóra er að vinna með ritstjórn og starfsfólki IEEE Press og Wiley að því að velja bækur til útgáfu innan áðurnefndra fræðasviða. „IEEE Press gefur út u.þ.b. 75-100 bækur á ári, þar á meðal fræðileg verk eftir einstaka höfunda (e. monographs), ritstýrðar bækur, námsbækur og stór uppflettirit. Bækurnar eru skrifaðar af leiðandi sérfræðingum og fjalla jafnan um nýjustu viðfangsefnin sem tengjast fagsviðum IEEE. Bækurnar koma annaðhvort út sem sjálfstæðar útgáfur eða sem hluti af bókaseríum,“ útskýrir Jón Atli.
Aðild að IEEE eiga yfir 500 þúsund félagar um allan heim en yfirlýst markmið samtakanna er að þróa nýjar tæknilausnir sem gagnast geta mannkyni. Auk bókaútgáfu standa samtökin m.a. fyrir ráðstefnum og bjóða upp á ýmiss konar þjálfun og námskeið fyrir aðildarfélaga.
Jón Atli nýtur mikillar virðingar á sínu fræðisviði á alþjóðavettvangi og það endurspeglast m.a. í því að hann hefur í átta ár í röð verið á lista greiningarfyrirtækisins Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims. Jón Atli er meðal fremstu fræðimanna heims á sviðum fjarkönnunar og stafrænnar myndgreiningar en þau snúast um að vinna upplýsingar úr stafrænum myndum af yfirborði jarðar sem teknar eru með flugvélum, drónum eða gervitunglum. Með úrvinnslu upplýsinga úr myndunum er hægt að varpa ljósi á ýmsar breytingar sem eiga sér stað á jörðinni, svo sem hopun jökla og útbreiðslu hafíss, eyðingu og útbreiðslu skóga og gróðurs og framrás hrauns í eldgosum.
