Skip to main content

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. apríl 2026 12:00 til 14:00
Hvar 

Grótta

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira, í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf.

Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ og vísindamiðlari, og líffræðinemar við HÍ munu leiða gönguna og svara spurningum.

Fjöruferðin er hluti af Með fróðleik í fararnesti, verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands.

Gott er að mæta vel klædd, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum.
Ekki gleyma nesti.

Fjöruferðin tekur um 2 klst.

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!

Mæting kl. 12.00 á bílastæðinu við Gróttuvita.

Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira, í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf. Ólafur Patrick Ólafsson, kennari í líffræði við HÍ og vísindamiðlari, og líffræðinemar við HÍ munu leiða gönguna og svara spurningum.

Með fróðleik í fararnesti: Fjöruferð í Gróttu