Fagna 25 ára afmæli Íslandsdeildar IEEE

Tuttugu og fimm ára afmæli Íslandsdeildar Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE) verður fagnað með afmælishátíð í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar fimmtudaginn 9. apríl kl. 16, en aðild að deildinni eiga fjölmargir starfsmenn við Háskóla Íslands. Nemendadeild IEEE hefur einnig verið starfrækt við HÍ um áratugaskeið.
IEEE eru áhrifamestu samtök heims á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði með yfir 500.000 félagsmenn í meira en 160 löndum. Íslandsdeildin var stofnuð árið 2000 og eru í henni nú rúmlega 100 manns. Markmið samtakanna er að stuðla að þróun á tækni sem bætir líf manna um allan heim og standa þau fyrir útgáfu á vísindatímaritum, ráðstefnuhaldi, staðlagerð og fleiru.
IEEE hefur ásamt Verkfræðingafélagi Íslands útnefnt Rafmagnsverkfræðing ársins hér á landi frá árinu 2006 en verðlaunin eru veitt þeim rafmagnsverkfræðingi sem hverju sinni þykir skara fram úr í störfum sínum á sviði rafmagnsverkfræði eða fyrir íslenskt samfélag. Vísindamenn innan Háskóla Íslands eru meðal þeirra sem hlotið hafa þá viðurkenningu.

Frá afhendingu viðurkenningar fyrir Rafmagnsverkfræðing ársins 2006. Frá vinstri: Kristinn Andersen, þáverandi formaður IEEE á Íslandi, Lewis Terman og Anthony C. Davies, fulltrúar IEEE, Sigmar Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Stjörnu-Odda og Rafmagnsverkfræðingur ársins, Steinar Friðgeirsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands, og Þorvarður Sveinsson, formaður Rafmagnsverkfræðingafélag Íslands.
Í tilefni 25 ára afmælis Íslandsdeildar IEEE verður boðið upp á afmælishátíð og hátíðarfyrirlestur. Á hátíðinni mun Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvunafræði og fyrrverandi rektor, sem jafnframt er formaður Íslandsdeildar IEEE, rekja sögu deildarinnar. Í framhaldinu mun Ian F. Akyildiz, fyrrverandi prófessor við Georgia Tech háskólann í Atlanta í Bandaríkjunum og gestaprófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, halda afmælisfyrirlestur sem hann nefnir „The Network That Thinks - How AI Is Giving Our Digital World a Mind of Its Own“. Ian hefur, líkt og Jón Atli, verið á lista greiningarfyrirtækis Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims og þá á hann í rannsóknasamstarfi við vísindamenn við skólann.
Nánari upplýsingar um afmælishátíðina og skráning á viðburðinn eru á vef Íslandsdeildar IEEE.
