Skip to main content
6. mars 2026

Nýtt strengjatónverk undir áhrifum íslenskra jökla frumflutt í Strassborg 

Nýtt strengjatónverk undir áhrifum íslenskra jökla frumflutt í Strassborg  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tónverk sem ætlað er að vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga á jökla hér á landi eftir pólska tónskáldið Agötu Zubel og byggist á samtölum hennar við Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði við HÍ, verður frumflutt í Strassborg í Frakklandi þriðjudaginn 10. mars. Guðfinna og samstarfsfólk hennar innan Horizon Europe rannsóknarverkefnisins ICELINK hafa átt í samstarfi við fjölda listamanna að undanförnu, allt í því augnamiði að vekja athygli á hinum miklu áhrifum loftslagsbreytinga á jökla úti um allan heim og knýjandi þörf á að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda í heiminum.

Í tilefni þess að í fyrra voru þrjú hundruð ár frá því að hið þekkta verk Árstíðirnar fjórar eftir Antonio Vivaldi leit dagsins ljós var Agötu Zubel ásamt þremur öðrum tónskáldum falið að semja tónverk sem kölluðust á við Árstíðirnar en undirstrikuðu um leið þær breytingar sem eru að verða á árstíðum nú um stundir. Yfirskrift hins nýja verks er [Óvisssar] árstíðir.

Zubel fékk það hlutverk að semja verk tengt Vetrinum í Árstíðunum og ákvað hún að tengja það Reykjavík og þeim umhverfisbreytingum sem eru að verða hér á landi af völdum loftslagsbreytinga. „Þetta nýja verk kallast á við verk Vivaldis og setur það í samhengi nútímans, tíma þar sem árstíðirnar eru að breytast vegna áhrifa af umsvifum mannsins og loftslagskrísunnar,“ segir Zubel í efniskrá með verkinu sem ber heitið Verður vetrinum bjargað?

Strasbourg

Zubel kom hingað til landsins í haust og átti samtal við Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði, um loftslagsbreytingar á Íslandi og áhrif þeirra á hopun jökla á Íslandi, en rannsóknir sýna að flatarmál jöklanna hefur minnkað um rúmlega 2.000 ferkílómetra á einni öld. Zubel ákvað m.a. að fella tölfræði tengda hopun jökla hér á landi inn í verkið.

Í efnisskránni þakkar Zubel Guðfinnu innilega fyrir hennar framlag til verksins. „Þökk sé henni endurspeglar tónlistin ekki hamfarir heldur von og jákvæða orku. Við vitum hvað þarf að gera til að sýna framtíðinni umhyggju. Við höfum þekkinguna og tæknina til að snúa við þessari neikvæðu þróun og það eina sem þarf eru ákvarðanir og sameiginlegur vilji,“ segir Zuber.  

Það er strengjasveit ungsveitar Evrópusambandsins sem mun flytja verkið í Pavillon Joséphine í Strassborg þann 10. mars en sveitin fagnar 50 ára afmæli í ár.

„Það veitir innblástur og er skemmtilegt að starfa með margs konar listamönnum. Í ICELINK-verkefninu leggjum við áherslu á skapandi samstarf við listamenn til þess að hámarka áhrif vísindalegra niðurstaðna okkar og til að undirstrika hversu brýnt það er fyrir samfélag manna að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir Guðfinna prófessor í jöklafræði við HÍ. MYND/Kristinn Ingvarsson

Með listamenn á Sólheimajökli 

Guðfinna tekur ásamt fleiri íslenskum vísindamönnum þátt í evrópska rannsóknaverkefninu ICELINK sem hlaut yfir einn milljarð króna í styrk frá Evrópusambandinu og miðar að því að varpa nýju ljósi á áhrif loftslagsbreytinga á jökla á Norður-Atlantshafssvæðinu. Samhliða því að safna og greina gögn um áhrif loftslags á jökla úr fortíð, nútíð og til framtíðar miðlar rannsóknarhópurinn niðurstöðunum til atvinnuífs, almennings og stefnumótenda í samstarfi við fjölbreyttan hóp listamanna.

Í upphafi árs komu hingað til lands þrír belgískir listamenn, Mattias De Craene, Stijn Demeulenaere og Kevin Trappeniers, til gestalistamannadvalar á vegum Sambands íslenskra listamanna í tengslum við framtakið Art/Earth — Jöklaminni. Verkefni gestalistamanna var að kanna listræn viðbrögð við loftslagsbreytingum og viðkvæmum vistkerfum og var það unnið í samstarfi við The Young Academy og vísindamenn Háskóla Íslands. Belgísku listamennirnir fóru með Guðfinnu á Sólheimajökul í síðasta mánuði og stóðu í framhaldinu fyrir sýningu í húsakynnum SÍM í síðustu viku sem RÚV fjallaði m.a. um.

Verkefnið Art/Earth — Jöklaminni  byggist á gagnkvæmum gestalistamannadvölum og í mars munu þrír íslenskir listamenn, Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Vala Jónsdóttir og Julie Sjöfn Gasiglia ásamt sýningarstjóranum Þórönnu Dögg Björnsdóttir taka þátt í eins mánaðar gestadvöl hjá C-TAKT í Dommelhof í Belgíu.

Þessu til viðbótar verður alþjóðadegi jökla fagnað í annað sinn þann 21. mars næstkomandi. Af því tilefni verður viðburður í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í tengslum við sýningu ljósmyndarans Kristjáns Maack, Sofandi Risar, sem vísar til íslenskra jökla. Meðal þeirra sem þar taka til máls er Guðfinna sem kynna mun ICELINK-verkefnið. 

„Það veitir innblástur og er skemmtilegt að starfa með margs konar listamönnum. Í ICELINK-verkefninu leggjum við áherslu á skapandi samstarf við listamenn til þess að hámarka áhrif vísindalegra niðurstaðna okkar og til að undirstrika hversu brýnt það er fyrir samfélag manna að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir Guðfinna um samstarfið.

jökull