Skip to main content

Úkraínu- og Rússlandsfræði, Örnám á grunnstigi

Úkraínu- og Rússlandsfræði, Örnám á grunnstigi

Hugvísindasvið

Úkraínu- og Rússlandsfræði

Örnám á grunnstigi – 25 einingar

Ný 25 eininga örnámsleið á grunnstigi þar sem nemendur fá tækifæri til að auka skilning sinn á menningarlegum og sögulegum bakgrunni landsvæðis sem verið hefur í miðpunkti heimsfrétta undanfarin ár.

Áhersla námsins er annars vegar á menningarlegar rætur hvors lands fyrir sig og það sem greinir þau að, hins vegar á sameiginlega sögu þeirra sem hluta Rússneska keisaradæmisins og síðar Sovétríkjanna.

Skipulag náms

X

Sovétsaga 1: Frá byltingu til ógnarstjórnar (RÚS111G)

Í námskeiðinu er fjallað um aðdraganda byltingarinnar 1917, hrun keisaraveldisins og það samfélag sem reis úr rústum borgarastríðsins 1918-1921. Fjallað er um stjórnmálaástandið á þriðja áratugnum og tilraunir bolsévíkastjórnarinnar til að ná tökum á matvælaframleiðslu og iðnaði um leið og tekist var á um eðli byltingarinnar og hins „nýja fólks“ sem byltingin hefði getið af sér. Í framhaldi af því er rætt um alþjóðleg áhrif kommúnismans og alþjóðasamband kommúnista, Komintern. Rætt verður um alræði Stalíns og þær gríðarlegu breytingar sem iðnvæðing og samyrkjuvæðing á fyrri hluta fjórða áratugarins hafði í för með sér. Loks verður fjallað um ógnarstjórn Stalíns, hreinsanirnar miklu og fangabúðakerfið (Gúlagið).

X

Sovétsaga 2: Kalda stríðið og sósíalískt samfélag (RÚS112G)

Námskeiðið hefst í lok fjórða áratugarins. Rætt er um heimsstyrjöldina síðari og áhrif hennar í Sovétríkjunum, sigurinn yfir Þjóðverjum og stöðu Sovétríkjanna alþjóðlega og innanlands í lok stríðsins. Þá er farið yfir helstu orsakaþætti Kalda stríðsins, stjórnir kommúnista í Austur-Evrópu, samfélagsþróun og stjórnarhætti. Loks er fjallað um tímabil Khrúsjovs og Brezhnevs og horft á samfélagsbreytingar eftir dauða Stalíns, Perestrojku Gorbatjsovs og hrun Sovétríkjanna. Staða helstu sovétlýðvelda auk Rússlands verður skoðuð vandlega, einkum Úkraínu og rýnt í sögulega þætti sem geta varpað ljósi á innlimun Krímskagans 2014 og allsherjar innrás Rússa 2022.

X

Rússneskar bókmenntir 1: Skáldsagan verður til (RÚS201G)

Á 19. öld urðu til bókmenntir í Rússlandi sem ekki aðeins áttu eftir að hafa mikil áhrif á samfélagsumræðu í heimalandinu og sjálfsmynd þjóðarinnar, heldur einnig á heimsbókmenntirnar og sýn annarra á Rússland og rússneska menningu. Í námskeiðinu verður skoðuð þróun rússneskra bókmennta á 19. öld og hvernig „stóra skáldsagan“ verður til. Fjallað verður um strauma og stefnur í rússneskum bókmenntum á tímabilinu, samfélagið sem þær urðu til í og hvernig einstakar manngerðir, þemu og stærri samfélagsmál birtast í verkum nokkurra höfunda. Þá verður kannað hverjar viðtökur verkanna voru heima fyrir og þann sess sem þau skipa í dag – hvort heldur sem er í Rússlandi eða smærri bókmenntakerfum eins og á Íslandi. Kennsla byggir á fyrirlestrum og umræðum.

X

Rússneskar bókmenntir 2: Umrót og andóf (RÚS213G)

Haldið verður áfram að skoða stóru skáldsöguna og örlög hennar við aldahvörf. Umrót og byltingar skóku rússneskt samfélag í upphafi 20. aldar og um leið var gróska í menningarlífi og listum mikil. Breyttar aðstæður og óvissa kölluðu á ný form, beittari nálgun og ekki síst nýjar og alvarlegri áskoranir. Hver urðu örlög bókmenntanna og rithöfunda í umróti byltingar, borgarastríðs og á tímum ógnarstjórnar í Sovétríkjunum? Lesin verða ljóð, smásögur og skáldsögur eftir nokkra höfunda og kannað hvernig pólitík, andóf og staða höfundarins gagnvart einræði og ritskoðun birtist í verkunum. Samtal bókmenntanna við fortíð, samtíð og framtíð verður einnig á dagskrá. Kennsla byggir á fyrirlestrum og umræðum.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2

Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.

Fylgstu með Hugvísindasviði:

Háskóli Íslands - aðalbygging

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.