Nemendum HÍ gefst kostur á að sækja um Erasmus+ ferða- og dvalarstyrki skólaárið 2026-27 við valda samstarfsskóla í löndum utan Erasmus+ þátttökulanda.
Styrkirnir eru ætlaðir nemendum sem sækja um skiptinám við eftirtalda háskóla:
- University of Aberdeen, Aberdeen, Bretlandi
- University of East Anglia, Norwich, Bretlandi
- University of Edinburgh, Edinburgh, Bretlandi (aðeins landfræði)
- University of Sussex, Brighton, Bretlandi
- University of British Columbia, Vancouver, Kanada
- University of Washington, Seattle, Bandaríkin
- University of Wisconsin-Madison, Madison, Bandaríkjunum
- National University of Singapore, Singapore
- Edith Cowan University, Perth, Ástralíu
- University of Melbourne, Melbourne, Ástralíu
- University of New South Wales, Sydney, Ástralíu
- University of Technology Sydney, Sydney, Ástralíu
Sótt er um Erasmus+ styrk samhliða umsókn um skiptinám með því að velja Erasmus+ úr fellilista þegar gestaskóli er tilgreindur í umsóknarforminu. Takmörkuð pláss eru í boði við hvern háskóla og farið verður eftir forgangsreglum við úthlutun plássa og styrkja.
Styrkupphæðir eru breytilegar eftir áfangastað en vakin er athygli á því að nemendur eiga kost á inngildingarstyrk á grundvelli færri tækifæra uppfylli þau sett viðmið.
| Land | Dvalarstyrkur | Ferðastyrkur* |
| Ástralía | 700 EUR / mánuði | 1735 EUR |
| Bandaríkin | 700 EUR / mánuði | 1188 EUR |
| Bretland | 606 EUR / mánuði | 309 EUR |
| Kanada | 700 EUR / mánuði | 1188 EUR |
| Singapore | 700 EUR / mánuði | 1735 EUR |
*Ferðastyrkur er föst upphæð óháð raunverði farmiða. Hægt er að sækja um viðbótarferðastyrk til Alþjóðasviðs ef sýnt þykir að ferðastyrkur nægi ekki fyrir 70% af ferðakostnaði, miðað við hagkvæmasta ferðamátann.