Menntun allra og sérkennslufræði, M.Ed.


Menntun allra og sérkennslufræði
M.Ed. – 120 einingar
Námið er fyrir þau sem lokið hafa B.Ed. með 90 einingum til sérhæfingar á námssviði í grunn- eða leikskóla, eða í kennslugrein grunnskóla.
Í náminu öðlast nemendur hæfni í að vinna með öðrum að því að skapa menningu í skólastarfi þar sem styrkleikar allra fá að njóta sín.
Skipulag náms
- Haust
- Kennsla og hönnun námsrýmis til að mæta þörfum skynsegin nemenda
- Fjöltyngdar nálganir í kennslu
- Menntun allra í fjölmenningarsamfélagi: Kenningar og rannsóknir
- Vor
- Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðumB
- Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðumB
- StarfendarannsóknirB
- Óháð misseri
- Kennslufræði og skipulag stoðþjónustu
Kennsla og hönnun námsrýmis til að mæta þörfum skynsegin nemenda (MAL004F)
Í námskeiðinu verður fjallað um einhverfu, taugafjölbreytileika og skynsegin (e. neurodivergent) börn í skólakerfinu. Fjallað verður um margvísleg sjónarhorn og leiðir til að skilja einhverfu og taugafjölbreytileika/skynsegin. Fjallað verður um leiðir til að mæta skynsegin einstaklingum og styðja þá til þátttöku í því sem fram fer innan leik-, grunn – og framhaldsskóla, bæði hvað varðar aðferðir og hönnun námsrýmis. Í þeim efnum er sérstaklega horft til inngildandi menntunar, algildrar hönnunar, persónumiðaðrar nálgunar og félagslegs sjónarhorns í námi og kennslu. Markmið námskeiðs er að efla hæfni þátttakenda til að mæta þörfum og skynsegin nemenda innan inngildandi menntakerfis.
Kennslufyrirkomulag:
Fyrirlestrar, umræður og hópavinna. Skyldumæting er í námskeiðið sem er kennt í stað – og fjarnámi. Nemendur sem eru í fjarnámi taka þátt í rauntíma á netinu. Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt og með tilliti til hagnýtingar er mikilvægt að nemendur mæti eða taki þátt í rauntíma til að hámarka námsupplifun. Yfir önnina er einnig unnið jafnt og þétt í Canvas.
Fjöltyngdar nálganir í kennslu (MAL103F)
Tungumál er nauðsynlegt tæki til tjáningar og samskipta og opnar dyr að þekkingu og skilningi á samfélögum. Þekking á tungumálum eykur víðsýni, stuðlar að vitsmunaþroska og betri skilningi á eigin menningu. Fjöltyngi tengist menntun, árangri og vellíðan nemenda.
Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur kynnist leiðum til að meta og nýta tungumála- og menningarauðlindir nemenda, og geti beitt kennsluaðferðum sem byggja á tungumálaforða fjöltyngdra barna og ungmenna til að efla nám þeirra.
Menntun allra í fjölmenningarsamfélagi: Kenningar og rannsóknir (MAL104F)
Hugmyndir um menntun allra, fjölmenningarmenntun og sérkennslu eru mikilvægir þættir í skilvirkum skólum með fjölbreyttum nemendahópum.
Megintilgangur námskeiðsins er að gefa nemendum kost á að dýpka þekkingu sína og skilning á rannsóknum og kenningum á sviði menntunar allra og fjölmenningarfræða á Íslandi og í öðrum löndum.
Fjallað verður um rannsóknir og kenningar er varða jaðarsetningu barna og ungmenna í skólakerfinu út frá hugmyndum um jafnræði, jafnrétti og mannréttindi. Ennfremur verður fjallað um menntun allra og fjölmenningarlega menntun í sögulegu og alþjóðlegu samhengi, stöðu minnihlutahópa og stöðu flóttafólks.
Hugtakið samtvinnun (e. intersectionality) dregur athygli að því að þegar breytur eins og kynþáttur, tungumál, trú, þjóðerni, fötlun, kynhneigð mætast, hafa þær margfeldisáhrif á stöðu nemenda.
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F, MVS213F)
Markmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.
Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.
Starfendarannsóknir (MVS011F)
Inntak / viðfangsefni
Á námskeiðinu verður farið yfir tilurð og þróun starfendarannsókna í ýmsum löndum, m.a. Japan, Ástralíu, Bandaríkjunum og Bretlandi. Rýnt verður í hugmyndafræði slíkra rannsókna og hinar margvíslegu myndir sem þær hafa tekið á sig og birtast í ólíkum orðum sem notuð eru um slíkar rannsóknir, t.d. starfendarannsóknir (action research), kennararannsóknir (teacher research), kennslurýni (lesson study), starfstengd sjálfsrýni (self-study) og practitioner research. Sérstök áhersla verður lögð á starfendarannsóknir í skólum og öðrum vettvangi menntunnar, þar á meðal á Íslandi og ákveðin dæmi skoðuð í því sambandi. Megináherslan í námskeiðinu er á að þátttakendur geri rannsókn á eigin starfi/starfsháttum og kynni hana í námskeiðinu. Ekki er skilyrði að nemendur séu í starfi þegar þeir taka námskeiðið.
Vinnulag
Námskeiðið er vettvangs- og samstarfsmiðað. Grunnhugmyndin er sú að þátttakendur geri rannsókn í tengslum við eigið starf í samráði við kennara og aðra þátttakendur í námskeiðinu og vinni úr henni í nánu samstarfi við kennara og aðra þátttakendur, t.d. í gegnum ígrundanir, kynningar og samræður. Nemendur halda leiðarbók eða rannsóknardagbók um rannsókn sínar og gera lestrardagbók í tengslum við lestur fræðigreina. Að auki taka þeir þátt í ýmis konar verkefnum og umræðum á netinu.
Kennslufræði og skipulag stoðþjónustu (MAL204F)
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa þátttakendur til að leiða og skipuleggja stoðþjónustu í samstarfi við fagaðila innan og utan skóla. Að þátttakendur séu undirbúinir undir að starfa samkvæmt lögum og reglugerðum er snúa að skólastarfi. Sérstaklega ber að nefna lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) sem leggja þá ábyrgð á starfsfólk skóla að fylgjast með velferð og farsæld barna og fjölskyldna og meta þörf fyrir þjónustu, að bregðast við þörfum barna og foreldra fyrir þjónustu á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur og að hafa samráð með það að markmiði að þjónusta sé samfelld í þágu velferðar barna og foreldra.
Í lok námskeiðsins eiga þátttakendur að geta metið, undirbúið og skipulagt stuðning fyrir einstaklinga og hópa og fylgt þeirri framkvæmd eftir á markvissan hátt. Þátttakendur eiga að vera færir um að leiða og skipuleggja samstarf við foreldra, fagaðila innan og utan skóla og aðra sem koma að málefnum barna og ungmenna og þekkja hlutverk tengiliða skv. fyrrgreindum lögum um farsæld.
Vinnulag: Fyrirlestrar, umræður, mat og beiting fræða á tiltekin viðfangsefni, samstarf í hópum. Nemendur vinna vettvangstengd verkefni. Kennt er í staðlotum, nokkrum síðdegistímum og á vefnum (Canvas).
Menntun allra: Starf á vettvangi I (MAL301F)
|
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur þeirra sem starfa við stoðþjónustu leik- og grunnskóla. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. |
Menntun allra: Starf á vettvangi II (MAL401F)
Megin áhersla námskeiðsins er að kynna nemendum fyrir starfi stoðþjónustu í leik-, grunn- eða framhaldsskólum. Nemendur sækja vettvangsnámið í valda skóla og starfa undir leiðsögn starfandi kennara/sérkennara og takast á við fjölbreytt verkefni. Þeir taka virkan þátt í störfum leiðsagnarkennara sinna og eða annarra kennara í samræmi við kennsluáætlanir. Í vettvangsnáminu er miðað að því að nemendur kynnist starfi sérkennarans, skipulagi skólastarfs og framkvæmd stoðþjónustu/sérkennslu.
Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir útbúa áætlanir (hóp- og einstaklings) sem byggja á áherslum aðalnámskrár viðeigandi skólastigs og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem þeir sjálfir viða að sér.
Nemendur sem lokið hafa B.Ed. í leikskólakennarafræði fara í vettvangsnám í leikskólum. Nemendur sem lokið hafa B.Ed. í grunnskólakennslu yngri barna fara í vettvangsnám á yngsta stigi grunnskóla.
Lokaverkefni (MAL401L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á tilteknum námsleiðum í Kennaradeild er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist á þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið >> Menntavísindasvið >> Meistaraverkefni (MA og M.Ed.)
- Heilsársnámskeið
- Mentor í SprettiB
- Haust
- Mál og lestrarerfiðleikarB
- Stærðfræði í fjölbreyttum nemendahópiB
- Vor
- Trans börn og samfélagB
- Inngildandi nám og kennsla í framhaldsskólaB
- Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræðiB
Mentor í Spretti (GKY001M)
Í námskeiðinu felast verkefni nemenda í því að starfa sem mentor fyrir þátttakendur á framhalds- og háskólastigi í verkefninu „Sprettur“. Mentorar sinna mikilvægu hlutverki við að styðja og hvetja aðra nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk mentora er að skapa uppbyggjandi samband við þátttakendur, vera jákvæð fyrirmynd og taka þátt í sameiginlegum viðburðum sem skipulagðir eru innan Spretts. Mentor hlutverkið byggir á tengslamyndun og reglulegri samveru og felur í sér skuldbindingu gagnvart þeim nemendum sem mentor styður.
Sprettur er stuðningsverkefni fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem óska eftir auknum stuðningi til að efla námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu. Nemendur í námskeiðinu starfa sem mentorar og eru tengdir saman við þátttakendur með hliðsjón af sameiginlegum áhugasviðum. Mentorar vinna jafnframt saman í hópum og í samráði við kennara og umsjónaraðila verkefnisins.
Nemendur geta valið að skrá sig í námskeiðið á haustönn, vorönn eða dreifa álaginu yfir báðar annir (allt skólaárið). Skipulag námskeiðsins tekur mið af þessu vali, en allar námskröfur eru þær sömu óháð annaskiptingu. Mentorar skipuleggja reglubundna samveru með þátttakendum í Spretti og verja að jafnaði þremur klukkustundum á mánuði í samveru með þátttakendum, þremur klukkustundum á mánuði í heimavinnuhópi og mæta í alls fimm málstofur.
Nemendur skila dagbókarfærslum á Canvas og þurfa að hanna og framkvæma námsupplifun fyrir þátttakendur í Spretti. Dagbókarfærslur byggjast á lesefni og gagnrýnum hugleiðingum um mentorstarfið og eigin reynslu af þátttöku í verkefninu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.
Að loknu námskeiði, og að uppfylltum öllum kröfum, fá nemendur 5 ECTS einingar auk formlegs vottorðs fyrir þátttöku og lok verkefnisins.
Nemendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað og umsjónarkennari hefur samband við umsækjendur.
Frekari upplýsingar um verkefnið „Sprettur” má nálgast hér: www.hi.is/sprettur
Mál og lestrarerfiðleikar (KME108F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist helstu kenningum og rannsóknum á lestrarörðugleikum og geti lagt mat á þær. Skoði uppruna og tengsl lestrarörðugleika við mál- og taugasálfræðilega þætti og samspil við kennslu og kennsluaðferðir.
Viðfangsefni: Farið verður ítarlega í kenningar um tengsl lestrar- og málerfiðleika, þróun lesturs og lestrarlíkön verða rædd. Fjallað verður um helstu birtingarform mál- og lestrarörðugleika, og þær afleiðingar sem slíkir erfiðleikar geta haft á sjálftraust einstaklingsins, nám og námsárangur. Fjallað verður um helstu rannsóknir og kenningar á orsökum og einkennum dyslexíu og lagt mat á skilgreiningar. Skoðað verður hvernig meta má stöðu barna í lestri með hliðsjón af fræðikenningum og hvernig hægt er að draga úr og fyrirbyggja lestrarerfiðleika með snemmtækri íhlutun og einstaklingsmiðaðri kennslu í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskóla. Nemendur hljóta þjálfun í að meta stöðu eins eða fleiri nemenda í lestri (í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla) með tilliti til umskráningar og lesskilnings, kynnast aðferðum við að skima í áhættuhópa og leggja mat á kennsluaðferðir og kennsluefni með hliðsjón af rannsóknum og fræðikenningum.
Vinnulag: Fyrirlestrar og ígrundun fræðitexta með þátttöku nemenda, umræður, vettvangsathuganir, kannanir, hópverkefni, einstaklingsverkefni.
Stærðfræði í fjölbreyttum nemendahópi (KME111F)
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist kenningum og rannsóknum á því hvernig nemendur læra stærðfræði og geti beitt kennsluaðferðum sem henta við stærðfræðikennslu nemenda sem hafa ólíkar forsendur til náms.
Þátttakendur kynna sér rannsóknir á stærðfræðinámi og hvernig skilningur á stærðfræði þróast. Þeir læra að greina þekkingu og skilning nemendahópsins og meta námsferli þeirra. Þeir kynna sér hvernig erfiðleikar í stærðfræði birtast, áhrif þeirra á nám nemenda og aðferðir við að greina þá. Þátttakendur afla sér þekkingar á kennsluaðferðum og námsúrræðum fyrir nemendur með ólíkar forsendur til náms, þ.m.t. með fjölbreyttan tungumála- og menningarlegan bakgrunn.
Vinnulag
Áhersla er lögð á að þróa námssamfélag sem allir taka virkan þátt í að móta. Hægt er að taka þátt á staðnum, með fjarfundabúnaði og á vefsvæði námskeiðsins. Haldnir verða fyrirlestrar, málstofur og umræðutímar. Nemar lesa fræðilega texta og leita svara við áleitnum spurningum um efnið. Þeir framkvæma rannsóknir, gera grein fyrir niðurstöðum og draga af þeim ályktanir. Þeir setja fram hugmyndir um hvernig byggja má upp og þróa námsumhverfi og stærðfræðikennslu.
Trans börn og samfélag (UME204M)
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum í fræðum sem koma inn á veruleika og upplifanir trans fólks (trans fræði). Einnig verða meginhugmyndir gagnrýnna bernskufræða kynntar. Áhersla verður lögð á að þátttakendur verði meðvitaðir um veruleika trans ungmenna og trans barna og samfélagslega orðræðu um málaflokkinn.
Viðfangsefni:
Unnið verður meðal annars með hugtökin kyngervi, kynjatvíhyggja, kynsegin, kynvitund, samtvinnun, trans* hugtakið, síshyggja, umhyggja, barnavernd og réttindi barna. Fjallað verður um megininntak transfræða/hinseginfræða og hvernig hægt er að nýta sér þá nálgun til varpa ljósi á uppeldi, menntun, samfélag, tómstunda- og félagsstarf og íþróttir. Nálgunin verður í anda gagnrýnna trans- og bernskufræða og félagslegrar mótunarhyggju. Enn fremur verður fjallað um skólakerfi og aðrar stofnanir, hérlendis og erlendis, og hvernig margs konar mismunun skapast og viðhelst og getur ýtt undir stofnanabundna transfóbíu og síshyggju. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir í tengslum við efnið. Þá verður lögð áhersla á að þjálfa verðandi uppeldis- og menntunarfræðinga, þroskaþjálfa, foreldrafræðara, kennara, tómstunda- og félagsmálafræðinga, stjórnendur og annað fagfólk til að skapa hinsegin/trans vænt andrúmsloft í viðeigandi hópum sem unnið er með.
Inngildandi nám og kennsla í framhaldsskóla (MAL202F)
Námskeiðið er valnámskeið og ætlað þeim sem hafa áhuga á inngildandi námi og kennslu í framhaldsskólum. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í skipulag og framkvæmd stuðnings fyrir framhaldsskólanema sem eiga rétt á kennslu og sérstökum stuðning í námi, í samræmi við metnar sérþarfir. Fjallað verður um kenningar og rannsóknir á sviði námsstuðnings og sérkennslu í framhaldsskólum með það fyrir augum að þátttakendur geti nýtt sér niðurstöður á skipulegan hátt. Áhersla er lögð á þverfaglega nálgun og samstarf. Nemendur kynnast þeirri stoðþjónustu sem er í boði innan framhaldsskóla.
Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði (MAL003F)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að kynnast völdum þáttum, bæði fræðilegum og hagnýtum, sem auðvelda almennum kennurum og sérkennurum að skilja, meta og bregðast við þörfum nemenda sem eiga við hegðunar- og/eða tilfinningavanda að etja. Fjallað verður um aðferðir við skimun og mat, áhrifaþætti og algengi mismunandi hegðunar- og/eða tilfinningalegra erfiðleika, s.s. mótþróa, þunglyndis og kvíða. Einnig verður fjallað um hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) eða röskun á einhverfurófinu. Sérstök áhersla er á að auka færni þátttakenda í að sníða skólastarf og skólasamfélag betur að þörfum nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika og veita kennurum og skólastjórnendum ráð um hvernig unnt er að gera slíkt og fjarlægja hindranir sem útiloka og einangra nemendur með slíkan vanda.
Nemendur hafi aflað sér grunnþekkingar á helstu hugtökum og sjónarhornum þroskasálfræði eða félagsvísinda á námsferli sínum áður en þeir sækja námskeiðið. Reynsla af vinnu með börnum eða ungmennum æskileg.
Helstu efnisþættir
- Mismunandi skilgreiningar á hegðunar- og tilfinningaörðugleikum - alþjóðleg viðmið og flokkunarkerfi.
- Hegðunar- og tilfinningaörðugleikar í samfélagslegu samhengi.
- Helstu kenningar um hegðunar- og tilfinningaörðugleika barna og unglinga (conceptual models).
- Viðbrögð skólasamfélagsins; nemendasýn og skólastefna - skóli án aðgreiningar, sérdeildir eða sérskólar? Ólík sjónarhorn við að skilgreina vandann.
- Sértæk úrræði innan skólasamfélagsins og fræðilegur bakgrunnur þeirra.
- Mismunandi aðferðir við virknimat (functional behavioral assessment) til að ákvarða hvaða þættir ýta undir hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda.
- Gerð stuðningsáætlunar með margvíslegum aðferðum til að fyrirbyggja erfiða hegðun eða vanlíðan, kenna og styrkja viðeigandi hegðun og bregðast þannig við erfiðri hegðun þannig að dragi úr henni með tímanum og nemendum líði betur.
- Aðferðir til að auka félagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Vinnulag
Í staðlotum verða fyrirlestrar auk verkefnatíma. Á kennsluvefnum Canvas verða birtar hljóðglærur og kennslubréf, og þar fara fram umræður úr völdum efnisþáttum. Námskeiðið er kennt með fjarnámssniði en mætingarskylda er í staðlotur. Námsmat er að mestu leyti fólgið í hópverkefnum.
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Saga, 2. hæð
Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Opið kl. 09:00 - 15:00 alla virka daga
Sími: 525 5950 | Netfang: mvs@hi.is
Samfélagsmiðlar
Fylgdu okkur á Facebook, Instagram og YouTube!

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.