Hér að neðan má finna upplýsingar um inntökupróf í íslensku á stigi B2 í Evrópska tungumálarammanum (sjálfsmatsrammi CEFR). Prófin eru haldin á vegum Háskóla Íslands. Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022 | Háskóli Íslands Almennar upplýsingar um inntökupróf í íslensku Í prófinu er færni umsækjenda í íslensku metin á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Prófað er í fjórum þáttum: lesskilningi, hlustun, ritun og munnlegri færni. Niðurstöður prófsins verða sendar til umsækjanda með tölvupósti. Skráning og próftökugjald Umsækjendur með samþykkta umsókn sem lokið hafa prófi frá erlendum skóla fá sendar upplýsingar frá Háskóla Íslands um prófstað og -tíma. Próftökugjald verður ekki innheimt árið 2026, en verður tekið upp 2027 (sem stendur 35.000 kr.) Dagsetningar og prófstaður Prófin eru staðpróf og fara fram í byggingum Háskóla Íslands. 15.-16. júní. Umsækjendur sem eiga þess ekki kost að taka prófið í júní geta sótt um prófdag 10. ágúst. Hafið sambandi við islenskuprof@hi.is. Athugið að skólavist er ekki samþykkt fyrir en íslenskukunnátta er staðfest. Skráningargjald skal þá greitt eins fljótt of auðið er, fyrir fyrsta skóladag. Gott aðgengi er að prófstöðum. Umsækjendur sem geta ekki tekið prófið í Háskóla Íslands verða að taka það á viðurkenndum prófstöðum á Íslandi. Hér má finna lista yfir viðurkennda prófstaði. Umsækjendur verða sjálfir að hafa samband við viðurkenndan prófstað og skrá sig í próf þar. Nánari upplýsingar má finna hér undir yfirskriftinni Fjarpróf. Umsækjandi þarf að mæta í prófið með gild skilríki (vegabréf eða ökuskírteini). Upplýsingar um próf í lesskilningi, hlustun og ritun Prófin í lesskilningi, hlustun og ritun fara fram í rafræna prófakerfinu Inspera og taka u.þ.b. 4 klst. Háskóli Íslands útvegar próftökum tölvur og heyrnartól til að taka prófin. Próftakar fá rissblöð og penna. Engin önnur hjálpargögn eru leyfð í prófunum. Í lesskilningsprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 60 mínútur til að leysa prófið. Í hlustunarprófinu eru 4 verkefni og próftakar fá 40 mínútur til að leysa prófið. Í ritunarprófinu eru 2 verkefni og próftakar fá 80 mínútur til að leysa prófið. Stutt hlé eru gerð á milli prófanna. Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófanna vel með því að skoða sýnisprófin hér fyrir neðan. Sýnispróf í lesskilningi – íslenska á B2 stigi Sýnispróf í hlustun – íslenska á B2 stigi Sýnispróf í ritun – íslenska á B2 stigi Upplýsingar um munnlegt próf Próftaka er úthlutað próftíma í munnlegt próf. Prófið tekur alls 30 mínútur. Fyrstu 15 mínúturnar fær próftakinn að undirbúa hluta prófsins í biðstofu áður en prófið hefst. Prófið sjálft tekur 15 mínútur í prófstofu. Í prófinu eru 3 verkefni sem eru afhent á staðnum. Próftaki tekur prófið einn og er metinn af tveimur prófdómurum. Próftakar eru hvattir til að kynna sér uppbyggingu prófsins vel með því að skoða sýnisprófið hér fyrir neðan. Sýnispróf í munnlegri færni – íslenska á B2 stigi facebooklinkedintwitter