
- Andmælendur skulu vera viðurkenndir sérfræðingar í viðfangsefni doktorsritgerðarinnar. Þeir skulu hafa birt ritsmíðar er tengjast verkefni stúdents á vettvangi sem gerir strangar fræðilegar kröfur og geta tekið þátt í vísindalegri rökræðu um efnisatriði doktorsrannsóknarinnar.
- Andmælendur skulu hafa doktorspróf eða jafngildi þess. Hæfnisdómur fyrir starf prófessors getur komið í stað doktorsprófs.
- Andmælendur mega ekki hafa setið í doktorsnefnd viðkomandi verkefnis og mega ekki tilheyra sama rannsóknarteymi.
- A.m.k. annar andmælenda skal vera kennari eða sérfræðingur við annan háskóla eða rannsóknastofnun.
- Andmælendur mega ekki hafa þau faglegu tengsl við doktorsnema, leiðbeinanda eða doktorsnefnd sem valda því að hægt sé að draga hæfi þeirra í efa. Miðað er við að andmælendur hafi ekki birt vísindagreinar með doktorsnema, leiðbeinanda eða doktorsnefndarmönnum undanfarin fimm ár. Sé um safngreiningar (e. meta analysis) eða fjölhöfundagreinar að ræða skal fylgja staðfesting þess efnis að hvorki hafi verið formlegt samstarf við framkvæmd rannsóknar né ritun greinar. Að starfa í sömu deild og leiðbeinandi þykir almennt bera vott um of mikla nálægð.
- Ef tilnefndur andmælandi starfar innan þeirrar deildar eða þess háskóla sem doktorsneminn stundar nám sitt eða hefur önnur tengsl við doktorsnema, leiðbeinanda eða doktorsnefnd (t.d. faglegt samstarf, birting vísindagreina eða félagsleg tengsl) skal greina frá þeim tengslum. Rökstyðja þarf valið á tilnefndum andmælanda og hvers vegna áðurnefnd tengsl valda ekki vanhæfi. Miðstöð framhaldsnáms metur tilnefninguna og kallar eftir nýrri tilnefningu ef hún telur tengslin geta valdið vanhæfi.
- Um önnur tengsl sem kunna að leiða til vanhæfis gilda vanhæfisákvæði Stjórnsýslulaga (nr. 37/1993).
Umsóknarkennari fyllir út beiðni um skipan andmælenda í Doktorsnámunni og sendir til deildar. Fastanefnd deildar tilnefnir þá andmælendur sem hún metur að uppfylli ofangreind skilyrði.
Sjá nánar: Verklagsregla um skipan andmælenda doktorsritgerða við Háskóla Íslands og störf þeirra.