Forkröfur fyrir hjúkrunarfræði eða ljósmóðurfræði - Undirbúningsnám


Forkröfur fyrir hjúkrunarfræði eða ljósmóðurfræði
Undirbúningsnám –
Námsleið fyrir þau sem hyggjast sækja um ljósmóðurfræði til starfsréttinda (MS). Einnig fyrir nemendur sem stefna á framhaldsnám og eru með íslenskt hjúkrunarleyfi en hafa lokið erlendu háskólaprófi í hjúkrunarfræði sem ekki telst sambærilegt íslensku BS prófi og þurfa að ljúka tilteknum forkröfunámskeiðum áður.
Skipulag náms
- Haust
- Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun
- Langveikir og heilbrigðisþjónustan
- Heimahjúkrun
- Vor
- Tölfræði
- Aðferðafræði
- Lokaverkefni
Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun (HJÚ529G)
Í námskeiðinu verður lögð áherslu á að nemendur kynnist hlutverki hjúkrunarfræðinga innan heilsugæslunnar s.s. ung- og smábarnavernd og almennri móttöku. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun og eftirlit nýbura, sængurkvenna og fjölskyldna, hjúkrun ungu fjölskyldunnar og um hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og sú hugmyndafræði útfærð fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar. Í námskeiðinu kynnast nemendur aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum og er meðal annars farið í tengslamyndun í fjölskyldum. Jafnframt er farið í ýmis frávik svo sem áhrif meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns og þunglyndi mæðra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna. Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun.
Meginmarkmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á þeirri heilbrigðisþjónustu sem innt er af hendi innan heilsugæslunnar og um leið að auka skilning þeirra á hlutverki hjúkrunarfræðinga í almennri og sérhæfðri móttöku á heilsugæslustöðvum. Megin áhersla er lögð á heilsuvernd og fræðslu- og stuðning við fjölskyldur sem eru skjólstæðingar heilsugæslunnar. Fjallað verður um hugtök og kenningar tengdar hjúkrun fjölskyldna, heilsuvernd ogaðferðir við þróun fjölskylduviðtala og fræðslu- og stuðningsmeðferða. Auk þess verður fjallað um það hvernig hjúkrunarfærðingar geta nýtt gagnreynda starfshætti á klínískum vettvangi og hugmyndafræði heilsugæsluhjúkrunar í starfi og til rannsókna. Stefna stjórnvalda í heilbrigðismálum verður höfð að leiðarljósi. Námskeiðinu er þannig ætlað að gefa nemendum tækifæri til að þróa eigin færni í að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í eigin heilsurækt. Þannig gefur námskeiðið nemendum tækifæri til að kynnast ákveðnum sérsviðum innan hjúkrunar.
Langveikir og heilbrigðisþjónustan (HJÚ727G)
Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.
Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.
Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Heimahjúkrun (HJÚ711G)
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Tölfræði (HJÚ214G)
Í námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði hagnýtrar tölfræði. Að megin efni er fjallað um tölfræðilega úrvinnslu, túlkun á niðurstöðum og framsetningu. Helstu efnisþættir eru: Mælingar á miðlægni og dreifingu í talnasöfnum, stöðlun, normaldreifing, öryggismörk, marktækni (z-, t- og x2-próf) og fylgni (líkindahlutfall, fí, Spearman's r og Pearson's r.
Aðferðafræði (HJÚ243G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Lokaverkefni (HJÚ818L)
Lokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði tveir saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
- Haust
- Samskipti og fræðsla
- Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun
- Heimahjúkrun
- Langveikir og heilbrigðisþjónustan
- Vor
- Tölfræði
- Lokaverkefni
- Valnámskeið í klínískri hjúkrun
- Aðferðafræði
Samskipti og fræðsla (HJÚ314G)
Námskeiðið er kennt á 2. ári í grunnnámi í hjúkrunarfræði og er í námskeiðinu byggt ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í námskeiðum um hjúkrunarfræði og félags- og sálfræði. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að færni nemenda til 1) samskipta sem einkennast af gæðum, 2) að mynda árangursríkt meðferðarsamband, 3) að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar fræðslu með gagnreyndum aðferðum 4) að skilja hvernig ofangreind færni tengist öryggi notenda heilbrigðisþjónustunnar. Á námskeiðinu verður fjallað um samskipti frá ýmsum hliðum og fá nemendur fjölmörg tækifæri til æfingaí kennslustundum og utan þeirra. Þar verður lögð áhersla á að skoða og þjálfa virka hlustun, viðbrögð í erfiðum samskiptum og uppbyggjandi leiðir til samskipta við notendur heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verður um hugtakið virðingu, ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks og fagmennsku. Hugtakið meðferðarsamband verður sérstaklega tekið fyrir og „erfiðir sjúklingar“ræddir út frá tilkalli allra til heilbrigðisþjónustu.
Á námskeiðinu er ennfremur er fjallað um tilgang heilbrigðisfræðslu/sjúklingafræðslu og tengsl fræðslu við útkomu og árangur meðferðar. Helstu kenningar er tengjast heilbrigðisfræðslu og námi fullorðinna verða kynntar svo og hugtakið heilsulæsi. Farið verður í fræðsluferlið í ljósi mismunandi þarfa skjólstæðinga og nemendur æfa sig í að skipuleggja og veita fræðslu. Skoðaðar verða mismunandi kennsluaðferðir og kennslumiðlar og hvernig þekking, færni og viðhorf hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á árangur fræðslu til skjólstæðinga.
Klínísk færni í fjölskylduhjúkrun (HJÚ529G)
Í námskeiðinu verður lögð áherslu á að nemendur kynnist hlutverki hjúkrunarfræðinga innan heilsugæslunnar s.s. ung- og smábarnavernd og almennri móttöku. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um umönnun og eftirlit nýbura, sængurkvenna og fjölskyldna, hjúkrun ungu fjölskyldunnar og um hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og sú hugmyndafræði útfærð fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar. Í námskeiðinu kynnast nemendur aðlögun foreldra að nýjum hlutverkum og er meðal annars farið í tengslamyndun í fjölskyldum. Jafnframt er farið í ýmis frávik svo sem áhrif meðgöngu-og fæðingarreynslu á heilsu móður og barns og þunglyndi mæðra eftir fæðingu. Nemendur öðlast grunnþekkingu og þjálfun í því að meta sérþarfir og heilsufarsástand mæðra,nýbura og fjölskyldna eftir fæðingu, bæði með klínískri starfsþjálfun og einnig með gerð lausnaleitarverkefna. Áhersla verður lögð á að þjálfa nemendur í samskiptum við skjólstæðinga og fyrirbyggjandi og heilbrigðishvetjandi hjúkrun.
Meginmarkmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á þeirri heilbrigðisþjónustu sem innt er af hendi innan heilsugæslunnar og um leið að auka skilning þeirra á hlutverki hjúkrunarfræðinga í almennri og sérhæfðri móttöku á heilsugæslustöðvum. Megin áhersla er lögð á heilsuvernd og fræðslu- og stuðning við fjölskyldur sem eru skjólstæðingar heilsugæslunnar. Fjallað verður um hugtök og kenningar tengdar hjúkrun fjölskyldna, heilsuvernd ogaðferðir við þróun fjölskylduviðtala og fræðslu- og stuðningsmeðferða. Auk þess verður fjallað um það hvernig hjúkrunarfærðingar geta nýtt gagnreynda starfshætti á klínískum vettvangi og hugmyndafræði heilsugæsluhjúkrunar í starfi og til rannsókna. Stefna stjórnvalda í heilbrigðismálum verður höfð að leiðarljósi. Námskeiðinu er þannig ætlað að gefa nemendum tækifæri til að þróa eigin færni í að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í eigin heilsurækt. Þannig gefur námskeiðið nemendum tækifæri til að kynnast ákveðnum sérsviðum innan hjúkrunar.
Heimahjúkrun (HJÚ711G)
Í námskeiðinu verður fjallað um heimilið sem vettvang heilbrigðisþjónustu. Rætt verður um gildi heimilisins fyrir fólk og áhrif tæknivæðingar á heimilismenn. Leitast verður við að skoða samspil umhverfis á heimilum og heilsu og lífsgæða. Samstarf við aðstandendur og aðstæður þeirra verða ræddar með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum. Gerð verður grein fyrir uppbyggingu og skipulagi heilbrigðis- og félagsþjónustu til þeirra sem dvelja heima og þarfnast aðstoðar vegna veikinda eða skerðingar á færni. Í fyrirlestrum og klínísku námi kynnist nemandi störfum í heimahjúkrun sem miða að því að viðhalda og efla vellíðan fólks með langvinn heilsufarsvandamál sem býr á eigin heimili.
Langveikir og heilbrigðisþjónustan (HJÚ727G)
Námskeiðið er ætlað 4. árs BS nemendum í hjúkrunarfræði. Það er fræðilegt (4 ECTS) og klínískt (1 ECTS) og skiptist í tvo þætti:
Þjónustunotkun og íslensk heilbrigðisþjónusta í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um veikindahegðun og þjónustunotkun, skýringar á þjónustunotkun, einkenni þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu, skipulag á og aðgengi að þjónustu, árangur og árangursmælingar í heilbrigðisþjónustu. Umsjón með þessum þætti námskeiðsins hefur Rúnar Vilhjálmsson, prófessor.
Meðferð/þjónusta hjúkrunarfræðinga fyrir langveika og fjölskyldur þeirra.
Fjallað er um hugtök, einkenni og fyrirbæri sem tengjast langveikum og fjölskyldum þeirra og hjúkrunarmeðferðir sérsniðnar að þörfum langveikra og fjölskyldna þeirra. Einnig er fjallað um siðferðileg álitamál í þjónustu við langveika og fjölskyldur þeirra og úrvinnsla álitamála þjálfuð. Nemendur kynnast starfsemi stofnana sem þjónusta langveika, verða í klínísku námi á göngudeildum fyrir langveika og kynnast starfsemi sjúklingasamtaka.
Tvær kennsluáætlanir verða í námskeiðinu, annars vegar fyrir grunnnemendur og hins vegar fyrir framhaldsnemendur. Nemendur námskeiðsins geta nálgast þær á Canvas þegar kennsla er hafin.
Tölfræði (HJÚ214G)
Í námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði hagnýtrar tölfræði. Að megin efni er fjallað um tölfræðilega úrvinnslu, túlkun á niðurstöðum og framsetningu. Helstu efnisþættir eru: Mælingar á miðlægni og dreifingu í talnasöfnum, stöðlun, normaldreifing, öryggismörk, marktækni (z-, t- og x2-próf) og fylgni (líkindahlutfall, fí, Spearman's r og Pearson's r.
Lokaverkefni (HJÚ818L)
Lokaverkefni í hjúkrunarfræði er 10 eininga námskeið sem undirbýr nemendur fyrir að beita fræðilegum vinnubrögðum og aðferðafræðilegri þekkingu í þeim tilgangi að setja fram nýja þekkingu með hagnýtt gildi. Nemendur vinna verkefni að jafnaði tveir saman undir leiðsögn bæði fastráðinna kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild og hjúkrunarfræðinga á klínískum vettvangi með a.m.k. meistarapróf. Verkefnin verða byggð á fræðilegum heimildum og tengjast klínískri vinnu hjúkrunarfræðinga.
Valnámskeið í klínískri hjúkrun (HJÚ823G)
Lýsing á námskeiðinu á íslensku:
Nemendur velja sér sjálfir klínískan vettvang eftir áhugasviði. Klínískur vettvangur er þar sem sjúklingum/einstaklingum er veitt hjúkrun og þar sem nemandi getur aukið klíníska færni sína og þekkingu. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi. Gert er ráð fyrir að nemandi dvelji á vettvangi í eina vinnuviku (40 stundir). Frávik geta verið frá því t.d. ef nemandi fer erlendis.
Nemandi hefur samband við vettvang og semur munnlega við hjúkrunarfræðing um að fá að koma í klínískt nám sem samsvarar 40 klukkustundum. Skilyrði er að nemandi hafi ekki verið né verði þar í klínísku námi í öðrum námskeiðum og að hjúkrunarfræðingur sé þar starfandi.
Nemandi sendir formlega umsókn með starfsferilskrá til umsjónarkennara námskeiðs (á Canvas vef námskeiðsins) og hjúkrunarfræðings á vettvangi. Í umsókn á að koma fram:
- Nafn og netfang nemanda.
- Nafn og netfang umsjónarkennara.
- Hvaða vettvang valdi nemandi og hver hefur umsjón með dvöl hans þar (nafn og netfang hjúkrunarfræðings).
- Hvers vegna varð þessi vettvangur fyrir valinu/rök fyrir vali.
- Hver eru markmið nemandans með klíníska náminu á þessum stað.
- Áhersluatriði sem nemandi mun sérstaklega kynna sér. Hvaða gagnreyndu þekkingu ætlar nemandi að skoða og skrifa um sem tengist þessum vettvangi.
Umsjónarkennari sendir hjúkrunarfræðingi á vettvangi upplýsingar um námskeiðið.
Þegar ljóst er hvenær nemandi mun fara á vettvang hefur hann samband við hjúkrunarfræðing á vettvangi. Nemandi staðfestir síðan við umsjónarkennara tímabil klíníska námsins. Mismunandi er eftir stundatöflu hvers nemanda hvenær hann getur farið á vettvang
Aðferðafræði (HJÚ243G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum í aðferðafræði sem og þekkingu á algengustu rannsóknaaðferðum sem beitt er í hjúkrunarrannsóknum.
Kynheilbrigði (HJÚ825G)
Í námskeiðinu kynnast nemendur hugmyndafræði kynheilbrigðis og skoða mikilvæga þætti er varða kynheilbrigði einstaklingsins, parsins og hvernig samfélagið getur haft mótandi áhrif á kynheilbrigði fólks. Jafnframt skyggnast nemendur inn í margvíslega áhrifaþætti á kynheilbrigði eins og barneign, ófrjósemi, sjúkdóma og meðferð þeirra sem geta raskað eðlilegri starfsemi líkamansog haft áhrif á líðan. Námskeiðinu er ætlað að efla nemendur i að sinna kynheilbrigðismálum með því að gefa þeim góðan þekkingarlegan grunn, gefa þeim tækifæri til að æfa sig að ræða um kynheilbrigðismál og æfa sig í að fræða aðra um kynheilbrigði.
Konur, heilsa og samfélag (HJÚ828G)
Námskeiðið fjallar um konur heilsu og samfélag. Fjallað er um líffræðilega, sál-/félags- og umhverfislega þætti sem hafa áhrif á heilbrigði kvenna. Pólitísk stefnumótun og hugmyndir um heilbrigði og skoðaðar í kynjafræðilegu samhengi. Unnið er út frá heildrænu sjónarmiði um æviskeiðin og fjallað um áhrif lífsviðburða, sjúkdóma og lyfja. Í námskeiðinu er einnig fjallað um sérhæfða líffæra- og lífeðlisfræði kvenna og barneignarferli, algenga kvensjúkdóma og helstu hugtök í erfðafræði og litningarannsóknum í tengslum við meðgöngu.
Hafðu samband
Skrifstofa Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Eirberg, 1. hæð, Eiríksgata 34
101 Reykjavík
Sími 525 4960
hjukrun@hi.is
Opið virka daga frá kl. 9 - 14

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.