Málþing til heiðurs Helgu Katrínar Tryggvadóttur

Þjóðminjasafn Íslands
Öndvegisverkefnið Hreyfanleiki og þverþjóðleiki á Íslandi rannsóknarsetur kynnir Fólksflutningar, réttlæti og val hinna verðugu, málþing til heiðurs Helgu Katrínar Tryggvadóttur, doktorsnema í mannfræði.
Aðalfyrirlesari er Prófessor Heath Cabot, mannfræðingur frá University of Pittsburgh. Prófessor Unnur Dís Skaptadóttir og Prófessor Kristín Loftsdóttir fjalla um akademískt framlag Helgu Katrínar til rannsókna á fólksflutningum en rannsókn Helgu Katrínar sneri að upplifunum og reynslu hælisleitanda hér á landi.
Aðrir mælendur eru Árdís Kristín Ingvarsdóttir, Erna Blöndal og Eyrún Ólöf Sigurðardóttir.
ALLIR VELKOMNIR
DAGSKRÁ
Málstofustjóri: Valdís Björt Guðmundsdóttir
12:00 – 12:15 Setning og opnunarávarp
Jón Levy Guðmundarson Selmuson
12:15 – 12: 40 Heath Cabot
“I speak for you”: Interpretation, Credibility, and Trust in Asylum Advocacy in Greece.
12:40 – 12:50 Unnur Dís Skaptadóttir
Kynning á verkum Helgu Katrínar I: Landmæri, mæri og útilokun.
12:50 – 13:00 Kristín Loftsdóttir
Kynning á verkum Helgu Katrínar II: Fordómar og vinna
13:00 – 13:10 Árdís Kristín Ingvarsdóttir
Gagnkvæm öryggisvernd og réttsýnar samræður
13:10 – 13:20 Erna Blöndal
Að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu – hvað þýðir það og hvaða áhrif hefur það við mat á þvi hvort veita eigi alþjóðlega vernd?
13:20 – 13:30 Eyrún Ólöf Sigurðardóttir
Andóf á Íslandi á árunum eftir Hrun
13:30 – 14:30 Léttar veitingar.