Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Bjarni Hauksson, BS-nemi á þriðja ári í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkinn við athöfn í Hátíðasal HÍ.
Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms. Sá nemandi sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi hlýtur styrkinn hverju sinni.
Bjarni Hauksson er fæddur 24. september 2004. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2023 og var semidúx skólans með 9,5 í meðaleinkunn. Bjarni hóf nám við Háskóla Íslands sama ár og hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands, sem veittur er nýnemum sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs. Hann hefur lokið 138 einingum í vélaverkfræði með einkunnina 9,65. Bjarni æfði frjálsar íþróttir með meistaraflokki Breiðabliks og varð m.a. Íslandsmeistari í sínum aldursflokki í bæði kúluvarpi og kringlukasti árin 2021 og 2022. Hann var valinn í úrvalshóp FRÍ árin 2022 og 2023.
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, prófessor og forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands. Sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, hinn 21. desember 1952.
Frekari upplýsingar um sjóði Háskóla Íslands er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands.
