Verðlaun úr Minningarsjóði Magnúsar Más Kristjánssonar veitt í fyrsta skipti

Hvatningarverðlaun úr Minningarsjóði Magnúsar Más Kristjánssonar, fyrrverandi prófessors í lífefnafræði við HÍ, voru afhent í fyrsta skipti síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin eru veitt þeim nemanda sem útskrifast með hæstu meðaleinkunn úr BS-námi í lífefna- og sameindalíffræði við HÍ. Teresa Ann Frigge varð þess heiðurs aðnjótandi að hljóta fyrsta styrk sjóðsins.
Verðlaunin afhenti Manuela Magnúsdóttir, dóttur Magnúsar Más, ásamt Zophoníasi Jónssyni, prófessor í sameindaerfðafræði, og Snædísi Huld Björnsdóttur, sitjandi námsbrautarstjóra í lífefna- og sameindalíffræði.
Markmið minningarsjóðsins er að hvetja til framúrskarandi árangurs í námi og að heiðra minningu Magnúsar Más. Hann lést árið 2024 langt fyrir aldur fram eftir stutta baráttu við krabbamein. Magnús Már var einn áhrifamesti kennari og vísindamaður á sviði lífefnafræði á Íslandi og kenndi og leiðbeindi hundruðum nemenda sem starfa í dag víða á vettvangi vísinda, heilbrigðisþjónustu og líftækniiðnaðar.
Tekið er við frjálsum framlögum í minningarsjóðinn með áheitum í Reykjavíkurmaraþoni eða á reikning sjóðsins.
Reikningsnúmer: 0133-15-011706
Kennitala: 521225-0760
